Fimmtudagur 25. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Selfoss er á barmi gjaldþrots: „Ég geri ráð fyrir að það verði einhver hagræðing“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sveitarfélagið Árborg er á barmi gjaldþrots samkvæmt frétt Vísis.

Í frétt Vísis segir að skuldir sveitafélagsins Árborgar hafi vaxið mikið í verðbólgunni og að frost á fasteignamarkaði hafi komið niður á tekjum sveitarfélagsins. Þar kemur einnig fram að veltufé sé neikvætt upp á 76 þúsund krónur á hvern íbúa. Bæjarstjóri Árborgar, Fjóla Kristinsdóttir, segir að nauðsynlegt sé að gera eitthvað í málinu en það gæti þýtt uppsagnir og eignasölur.

Fjóla S. Kristinsdóttir

Á morgun klukkan 17 á hótel Selfossi, hefur bæjarstjórn Árborgar boðað til íbúðafundar en þar á að ræða fjárhagsstöðu bæjarins og hún kynnt í þaula, eftir vinnu sem byggir á úttekt KPMG sem fyrirtækið vann fyrir sveitarfélagið. Segir Fjóla fjárhagsstöðuna afar erfiða líkt og hjá um tuttugu öðrum sveitarfélögum. Segir hún að mikill vöxtur hafi verið í Árborg og mikið byggt undanfarin ár. Þá hafi verðtryggð lán verið tekið sem hafi hækkað mjög í verðbólgunni og vaxtahækkunum síðustu missera. Því sé bærinn nánast í greiðslufalli.

„Það mátti ekki mikið útaf bera til að við værum komin á þann stað að við værum í hálfgerðu greiðslufalli,“ sagði bæjarstjórinn í samtali við Vísi.

Segir hún að sveitarfélagið skuldi í dag um 28 milljarða króna en veltufé frá rekstri hafi verið neikvætt í nokkur ár. Nú sé það neitvætt um 76 þúsund krónur á hvern íbúa. Bendir hún þó á að veltufé sé jákvætt um 100 þúsund krónur á hvern íbúa í samanburðarsveitarfélögum á borð við Mosfellsbæ, Akranes, Reykjanesbæ og Akureyri sem öll hafa verið í örum vexti, líkt og Árborg.

„Einhvern veginn hefur sveitarfélagið Árborg verið í þessum vanda í mjög langan tíma,“ segir bæjarstjórinn við Vísi.

- Auglýsing -

Fjóla segir að vandræðin hafi byrjað árið 2020 er veltufé frá rekstri var um 20 þúsund krónur á hvern íbúa sveitarfélagsins. Ekki væri þó hægt að kenna Covid-faraldrinum um stöðuna, tekjulega séð.

„Við erum í raun á þessum tíma farin í innviðafjárfestingar. Förum í leikskólabyggingu, íþróttahús, við förum af stað með nýja grunnskóla. Þannig að það eru miklar fjárfestingar á síðast liðnum fjórum árum sem kannski voru orðnar uppsafnaðar að einhverju leyti. Allt verðtryggt og í dag þegar komin er tíu prósenta verðbólga er það ekki gott,“ segir Fjóla. Skuldahlutfallið aukist dag frá degi.

Bæjarstjórinn segir að þrátt fyrir allt væru mikil tækifæri í stöðunni til endurskipulagningar og hagræðingar en án þess þó að skerða þurfi þjónustu bæjarins. Reksturinn þurfi að vera sjálfbærari, meðal annars með því að selja eignir. Segir hún að aðgerðirnar verði þó ekki sársaukalausar. „En auðvitað erum við ekki að fara að greiða niður skuldir sveitarfélagsins með því að hagræða eingöngu í rekstri. Það þarf fleira að koma til.“

- Auglýsing -

Aðspurð af fréttamanni Vísis, hvort það þýði að segja þurfi upp starfsfólki svaraði hún því játandi. „Ég geri ráð fyrir að það verði einhver hagræðing sem, já, komi niður á einhverjum störfum. Því miður þá er það þannig.“

Það er Sjálfstæðisflokkurinn sem er einn í meirihluta í Árborg eftir að flokkurinn vann hreinan meirihluta í sveitarstjórnarkosningunum í fyrra. Á kjörtímabilinu á undan mynduðu Áfram Árborg, Framsókn og óháðir, Samfylkingin og Miðflokkurinn meirihluta.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -