Fimmtudagur 25. apríl, 2024
10.1 C
Reykjavik

Sér mikla möguleika í gamla bænum á Blönduósi: „Við viljum fá fólk til að stoppa á Blönduósi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Reynir Finndal Grétarsson vill fjárfesta í gamla bænum á Blönduósi. Hyggst opna hótel og fleira sem trekkt gæti að.

Reynir Finndal Grétarsson
Ljósmynd: creditinfo.is

Á huni.is er sagt frá Húnvetningnum Reyni Finndal Grétarssyni sem áhuga hefur á að eignast fasteignir í gamla bænum á Blönduósi. Hyggur hann á kaup á Aðalgötu 6, þar sem Hótel Blanda er og tvær íbúðir á Aðalgötu 8 en það hús heitir Helgafell. Er ætlun Reynis að opna hótelið aftur í stækkaðri mynd en fyrir rúmu ári var eignarhaldsfélagið sem átti Hótel Blöndu, úrskurðað gjaldþrota.

„Félag sem ég á er að vinna í því að kaupa hótelið og einhverjar fleiri eignir í gamla bænum. Hugmyndin er sú að opna hótelið aftur, en reyna að stækka það með viðbyggingu eða með því að gera herbergi í nærliggjandi húsnæði,“ segir Reynir í samtali við Húnahornið. Segir hann að þau sem standa í þessu með honum, þar með talinn Blönduósingurinn Bjarni Gaukur Sigurðsson, telji gamla bæinn á Blönduósi vera algjöra perlu sem hægt er að gera meira með.

„Við viljum fá fólk til að stoppa á Blönduósi, en þá þarf líka að vera meiri afþreying á staðnum. Allt þarf þetta að skoða í samvinnu við fleiri aðila. Bæjaryfirvöld hafa verið í sambandi við okkur með þetta mála svo ég á ekki von á öðru en að menn vilji taka höndum saman um að gera Blönduós að spennandi stað fyrir ferðamenn og vonandi enn betri stað til að búa á,“ segir Reynir.

Er Reynir var spurður af hverju hann vilji fjárfesta á Blönduósi, var svarið einfalt: „Það er bærinn minn og sveitirnar í kring sveitin mín. Ég á mikið af vinum og ættingjum á Blönduósi og mér þykir mjög vænt um bæinn. Svo sé ég líka bara tækifæri til góðra verka.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -