- Auglýsing -
Sjálfstæðisflokkurinn í Fjarðabyggð tók nýverið þá ákvörðun að efna til prófkjörs svo hægt sé að velja frambjóðendur á lista flokksins í komandi sveitastjórnarkosningum í vor.
Austurfrétt birti frétt þess efnis í dag. Kosið verður um fjögur efstu sætin í prófkjörinu sem haldið verður 26. febrúar á nýju ári. Framboðsfrestur er til 22. janúar.
Var ákvörðunin tekin á fundi hjá flokknum fyrir stuttu en kjörnefnd þegar hafið störf.
Tveir fulltrúar flokksins eru nu í bæjarstjórninni en hvorki hafa framboð borist enn né hafa þeir fulltrúar sem nú sitja, gefið upp um plön sín.