Fimmtudagur 18. apríl, 2024
3.1 C
Reykjavik

Stefán Vagn er fylgjandi gjaldtöku í jarðgöng: „Þarf að vera hófleg og mögulega skipt eftir búsetu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Stefán Vagn Stefánsson alþingismaður, kveðst í grunninn, fylgjandi gjaldtöku af umferð um jarðgöng.

Fram kemur á bb.is að Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, sé í grunninn hlynntur þeirri hugmynd sem fram komi í samgönguáætlun Sigurðar Inga Jóhannessonar en þar er gert ráð fyrir gjaldtöku af umferð í öllum jarðgöngum. Segir Stefán Vagn að í því felist ákveðið jafnræði.

„Stóra spurningin er þessi, viljum við halda áfram á þeirri braut sem við höfum verið á síðustu ár það að ein eða engin jarðganga framkvæmd sé í gangi í einu eða viljum við fjölga og hraða þeim framkvæmdum sem kallað er eftir. Ef svarið er já þá þurfum við að finna leiðir til fjármögnunar og sú leið sem hér er til umræðu er ein af þeim leiðum.“

Bæti hann við: „Ég er fylgjandi þeirri hugmynd að fjölga jarðgöngum, til að tengja betur saman samfélög og sveitarfélög og ekki síður vegna öryggisþáttarins. Þess vegna er ég fylgjandi þeirri hugmynd að taka gjald af umferð í jarðgöngum, öllum, svo jafnræðis sé gætt, ekki bara þeim nýju eða þeim sem eiga eftir að koma. Gjaldtökuna á svo eftir að ræða en ljóst er að hún þarf að vera hófleg og mögulega skipt eftir búsetu, þ.e.a.s. þeir sem búa innan sveitarfélags þar sem jarðgöngin eru staðsett og tengja saman þéttbýliskjarna, sama vinnusóknarsvæði, eiga að greiða minna en ferðmenn inn á sama svæði. Vonandi verður þetta til þess að þær jarðganga framkvæmdir sem Vestfirðingar hafa raðað í forgang komist fyrr til framkvæmdar en núverandi áætlanir gera ráð fyrir. Það er markmiðið.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -