- Auglýsing -
Árekstur varð er tveir stórir vörubílar skullu harkalega saman á Akreyri um miðjan dag í dag. Varð áreksturinn á mótum þingvallastrætis og Miðhúsabrautar. Ekki liggja ástæður óhappsins fyrir en mikil hálka var á veginum. Bílarnir eru talsvert skemmdir en ökumenn sluppu með meiðsl.
Samkvæmt Akureyri.net lak nokkur olía úr bílunum en slökkviliðið var fljótt að mæta á svæðið til að hreinsa það upp. Lögreglan lokaði Þórunnarstræti frá Miðhúsabraut niður að Skógarlundi á meðan að hreinsunarstarf fór fram.