Fimmtudagur 28. mars, 2024
-4.2 C
Reykjavik

Uppsögn skipverjanna á Stefni: „Skýtur skökku við að afhenda uppsagnarbréf að nóttu án aðdraganda“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fram kemur á fjölmiðlinum bb.is að Verkalýðsfélag Vestfirðinga sé að láta athuga nánar uppsögn áhafnar Stefnis ÍS.

Kemur fram, að sögn Finnboga Sveinbjörnssonar formanns Verkalýðsfélagsins, að verið sé að skoða hvort lög um hópuppsagnir eigi við í þessu tilviki; þar er kveðið á um það hvernig eigi að standa að uppsögnum; miðað við fjölda þeirra sem sagt er upp sem og heildarfjölda starfsmanna fyrirtækisins.

Hann segir einnig að það sé ánægjulegt að þeim sem sagt var upp skuli bjóðist önnur störf hjá fyrirtækinu; finnur þó að því hvernig staðið var að uppsögninni:

„það skýtur skökku við að afhenda uppsagnarbréf að nóttu án aðdraganda eða samráðs við áhöfnina eða stéttarfélagið,“ segir Finnbogi.

Vegna uppsagnanna var áhöfnin, þá um nóttina, í mikilli óvissu um hvað framtíðin bæri í skauti sér, en alls var Þrettán manns sagt upp samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu frá HG; segir að útgerðin muni leitast við að útvega þeim sem missa vinnuna störf á öðrum skipum félagsins.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -