Rokklingurinn Thorberg Einarsson gerðist sjómaður: „Ég var alveg hroðalega sjóhræddur“

top augl

Thorberg Einarsson stýrimaður segist í samtali við Frosta Logason hafa verið smeykur fyrst eftir að hann byrjaði sjómennsku. „Ég var fáránlega sjóhræddur,“ svarar hann. „Og þótt ég væri ekki í hættu þá hefur mér oft fundist það. Það var bara bilun hvað ég var alveg hroðalega sjóhræddur.“

Frosti á að baki fortíð sem rokkstjarna en Thorberg gerði garðinn frægan með Rokklingunum í Grindavík. Þeir félagar voru um tíma samskipa í sumar,

 

Hann hélt lífinu í mér þessa túra.

16 ára gamall fór Thorberg á Skarfinn. „Ég fór nokkra túra eitt sumarið og það held ég ég að hafi verið fyrsta launaða sjómennskan. Skarfurinn var beitningavélarbátur,“ segir hann.  Mágur pabba hans var skipstjóri. „Hann hélt lífinu í mér þessa túra því þar breyttist þetta ekkert; ég man að einu sinni ældi ég í innsiglingunni í Grindavík á leiðinni út. Ég held þeir hafi verið að taka beitu og setja í rekkana og þetta var bara ógeðslegt. Í þeim túrum sem ég fór á Skarfinum þá held ég að ég hafi bara drukkið kók og borðað Snickers allan tímann. Svo í restina var ég farinn að geta borðað.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni