Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

MAGNAÐAR MYNDIR – Jón hefur farið sjö sinnum að gosi: „Stundum stendur manni ekki á sama“

„Fólkið þarf alltaf að ganga lengra. Ég held að það sé búið að drepa ríflega 100 dróna sem hafa bráðnað í gosinu. Instagram kynslóðin er að reyna að toppa sig í þessu,“ segir Jón Hilmarsson ljós­myndari sem hefur farið sjö sinnum að gosinu í Geldinga­dölum og er hvergi hættur.

Eld­hraunið er stór­kost­legt sjón­ar­spil.

Jón telur að það hafi nú örugglega einhverjir farið oftar en hann er hvergi að baki dottinn. „Þetta er auðvitað draumur ljós­myndarans. Það er aldrei að vita við hverju er að búast í næstu ferð.“

Jón starfaði við ljósmynda­leiðsögn áður en Covid faraldurinn skall á. Þá skellti hann sér í skóla til að klára MBA gráðu sína. Hann byrjað 19. mars að mynda gosið fyrir Víkur­fréttir og hyggst halda því áfram.

Yfir­lits­mynd af svæð­inu sem Jón tók sl. mánu­dag og sýnir hraunið að renna niður í Meradali.

Jón er afar áhuga­samur um gosið og fylgist náið með þróun þess.

„Breytingarnar á gosinu hafa orðið miklar frá upphafi þess. Þegar gígur númer tvö fór af stað var það á mjög skemmtilegum stað fyrir ljós­myndir þar sem hraun­flæðið var fjöl­breyttara og myndrænna.“

Hann hefur einnig fylst með ferðum fólks að gosstöðvum og séð margt og mikið.

„Stundum stendur manni ekki á sama. Það koma tímar sem það eru kannski tuttugu drónar að mynda í einu og flugvélar og þyrlur að svífa yfir. Stundum fara þær ansi lágt að mínu mati. Svo er fólk að elda sér mat þarna í rólegheitum, fara inn í rásir sem geta lokast eða stíga í hraunið. Sumir eru ansi glæfra­legir verð ég að segja. Aðrir ofgera sér.“

Gígur númer 2. Hraunið renna til norð­urs í átt að Geld­inga­dölum.

Jón notar sjálfur mikið dróna við sínar mynda­tökur. „Dróna­myndatakan hefur vinninginn. Maður fær betri yfirsýn við að horfa niður, sérstak­lega í ljósa­skiptunum þegar hraun­flæðið er afar fallegt. Það er orðið erfiðara eftir myrkur þar sem birtan frá gosinu sjálfu er svo mikil”.

Sjálfur segir Jón sig ekki hafa afrekað það enn að missa dróna.

„Ég reyni að halda mig yfir hrauninu sjálfur og passa vel upp á hæð drónans. Það verður að sýna ábyrgð, sérstak­lega þar sem ég er þarna sem frétta­maður. Það er engin ástæða til að vera alveg ofan í gosi þegar maður er með dróna. Ég er líka alltaf með gasmæli og grímu, ábyrg hegðun er lykil­atriði“.

Þessa mynd tók Jón þann 10. apríl sl.

Jón hefur bæði gengið upp að gosi og farið með þyrlu.

„Einu sinni fór ég upp með þyrlu en gekk niður. Það gat verið erfitt að ganga þetta með tuttugu kíló af dóti af sér en núna get ég ekið í Merardali og komist frétta­manna­leiðina þaðan, hún er hálftíma gangur. Það var mikill munur þegar að hún opnaði.“

Jón hefur tekið fjölda mynda beint ofan í hraun­straum­inn.

Aðspurður um hvenær næsta ferð væri áætluð segir Jón að hann fari um leið og færi gefst. „Það er reyndar spáð rigingu núna en um leið og henni slotar er ég farinn aftur. Það má gera ráð fyrir að ég verði þarna þrisvar til fjórum sinnum í viku að mynda.” Hann segist ekki hafa hugmynd um hve lengi gosið komi til með vera.

„Eins og vísinda­mennirnir benda á er alveg ómögulegt að segja til um það. Dyngjugos gæti þess vegna verið stöðugt um ókomna framtíð.“

Gígur 1 að kvöld­lagi.

Hann sér mikla möguleika í gosinu.

„Það eru margir kostir við svona gos. Auðvitað er gashættan til staðar en þetta er ótrúlegt sjónar­spil og stórfrétt út um allan heim og gæti auðveldlega orðið stór liður í næstu ferðamanna­sprengju. Það hefur aldrei verið önnur eins ljós­myndum í kringum eitt gos. Það er allt á yfir­snúningi. Ef þetta heldur áfram svona þarf meira en lögreglu og björgunar­sveitarmenn. Það þarf að koma þessu í eitthvað rekstrar­umhverfi. En það er seinni tíma vandamál,“ segir Jón.

Meira af stórfeng­legum myndum Jóns má sjá hér og einnig hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Á annatíma á flugvöllum geta tafir raskað ferðaáætlunum.

„Niður­lægjandi að smækka fólk niður í tölur“

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Af hverju getur lyktin af makanum verið svona ómótstæðileg?

Vigtuð vikulega og sett á matarplan aðeins tíu ára gömul