Við þurfum öll að rækta og vernda geðheilsu okkar út lífið. Rétt eins og með líkamlega heilsu, þar sem öllum er ráðlagt að taka vítamín daglega, gerir margt smátt eitt stórt í geðrækt. Geðhjálp býður því 30 skammta af G-vítamíni á þorranum; ráðleggingar sem er ætlað að bæta geðheilsu. Dagatal með G-vítamínsskömmtum verður sent á hvert heimili á Íslandi. Auk þess verður hægt að nálgast dagatalið í völdum sundlaugum og verslunum um allt land.
Markmiðið er að styrkja geðheilsu landsmanna en um leið að fyrirbyggja mögulega bresti og verja okkur í mótbyr. Með daglegri inntöku G-vítamíns myndum við sterkara ónæmi segir í tilkynningu frá Geðhjálp.
Í hverjum glugga dagatalsins er einn skammtur og daglega birtast góð ráð á gvitamin.is, Facebook og Instagram. Fylgist endilega vel með þar, ekki síst á miðvikudögum þegar stærri G-vítamínskammtar eru gefnir (alla miðvikudaga á þorranum).
Fjöldi geðræktandi vinninga verða einnig gefnir heppnum þátttakendum. Það eina sem þarf að gera er að taka þátt og nýta sér G-vítamínið, sem er ókeypis og án aukaverkana!
Leiðbeiningar: Opnaðu gluggann á dagatalinu og taktu inn G-vítamínskammt dagsins
Farðu á gvítamin.is
Taktu þátt í leikjum og viðburðum eins og þér hentar á gvitamin.is, á Facebook og á Instagram
Settu geðheilsu í forgang!
G-vítamínið er byggt á Geðorðunum 10 og 14 Lífsorðum Héðins Unnsteinssonar og Þórdísar Rúnarsdóttur.
Við búum öll við geð, rétt eins og við erum öll með hjarta.