Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Hvað er sjúkleg fyrirtíðaspenna? – Lærðu að þekkja einkennin

Hvað er sjúkleg fyrirtíðaspenna? – Lærðu að þekkja einkennin

Upplifir þú reiði, dep­urð, pirr­ing eða spennu dag­ana áður en þú byrjar á blæð­ingum? Finnur þú jafn­vel fyrir von­leysi og þung­lyndi? Upplifir þú óstöðugt sál­rænt ástand, við­kvæmni í brjóstum, höf­uð­verk, truflun á melt­ingu og jafn­vel ein­kenni frá hjarta? Eru verkir frá móð­ur­lífi miklir?

Þá gætir þú hugs­an­lega glímt við sjúk­lega fyr­ir­tíða­spennu, eða PMDD (Prem­enstrual Dysphoric Disorder).

Margar konur glíma við fyr­ir­tíða­spennu, en sjúk­leg fyr­ir­tíða­spenna er flokkuð sér í DSM-IV flokk­un­ar­kerf­inu og sál­ræn og lík­am­leg ein­kenni eru alvar­leg, jafn­vel hamlandi í dag­legu lífi. Skap­sveifl­urnar sem fylgja sjúk­legri fyr­ir­tíða­spennu geta verið ofsa­fengnar og valdið miklum ama.

Eins og með fyr­ir­tíða­spennu koma ein­kenni sjúk­legrar fyr­ir­tíða­spennu yfir­leitt fram sjö til tíu dögum áður en blæð­ingar hefj­ast. Ein­kennin geta svo varað fram yfir fyrstu daga blæð­inga. Einkenni geta þó komið fram strax eftir egg­los, sem er oft um tveimur vikum fyrir fyrsta dag blæð­inga. Þau koma ávallt fram á svoköll­uðu gul­bús­stigi, sem er í síð­ari hluta tíða­hrings­ins.

Skráð töl­fræði segir að algengi sjúk­legrar fyr­ir­tíða­spennu sé um 3-8 pró­sent kvenna á barn­eign­ar­aldri. Það er þó talið að mun fleiri til­vik séu óskráð og margar konur með PMDD rang­lega greindar með aðra kvilla og rask­anir. Því er tíðnin senni­lega nær 13-18 pró­sentum kvenna á barn­eign­ar­aldri.

Uppþemba og bólgur, höf­uð­verkir, við­kvæmni í brjóstum, melt­ing­ar­trufl­anir, þreyta og breyt­ingar á svefni og fæðu­venjum geta allt verið ein­kenni bæði fyr­ir­tíða­spennu (PMS) og sjúk­legrar fyr­ir­tíða­spennu (PMDD). Til þess að grein­ast með sjúk­lega fyr­ir­tíða­spennu þurfa hins­vegar ein­hverjir þess­ara and­legu kvilla að vera til staðar á gul­bús­skeiði (dag­ana frá egg­losi til blæð­inga):

Depurð og vonleysi

Kvíði eða spenna

Ýktar skapsveiflur

Mikill pirringur eða reiði

Þess má geta að þung­lyndi kvenna með sjúk­lega fyr­ir­tíða­spennu verður oft svo slæmt að sjálfs­vígs­hugs­anir gera vart við sig. Það sem greinir þetta frá hefð­bundnu þung­lyndi er að ein­kennin hverfa eftir fyrstu daga blæð­inga og gera ekki vart við sig aftur fyrr en í síð­ari hluta nýs tíða­hrings.

Orsök rösk­un­ar­innar er enn óljós. Þó virð­ist und­ir­liggj­andi þung­lyndi og kvíði vera algengt meðal kvenna sem glíma við sjúk­lega fyr­ir­tíða­spennu. Það gæti bent til þess að þær horm­óna­breyt­ingar sem valda blæð­ingum geri ein­kenni lynd­is­rask­ana verri.

Þó engin lækn­ing sé til við sjúk­legri fyr­ir­tíða­spennu er ýmis­legt sem hægt er að gera til þess að hugs­an­lega draga úr ein­kennum eða koma alveg í veg fyrir þau.

Eftirfarandi leiðir hafa gefið góða raun:

Þung­lynd­is­lyf, sér í lagi SSRI lyf, hafa reynst vel. Sumar konur taka þau ein­göngu á gul­bús­skeiði, á milli egg­loss og tíða­blæð­inga, á meðan aðrar taka lyfin alla daga mán­að­ar­ins. Þessi lyf geta dregið úr sál­rænum ein­kennum, þreytu, hinum ýmsu fæðu­löng­unum og svefn­vanda­málum.

Getn­að­ar­varn­arpillur. Inntaka getn­að­ar­varn­arpilla með engu hléi, eða stuttu hléi, hefur gefið góða raun í að draga úr ein­kennum fyr­ir­tíða­spennu og sjúk­legrar fyr­ir­tíða­spennu. Slíkt hentar þó auð­vitað ein­ungis konum sem vilja ekki verða óléttar og þola aðrar hugs­an­legar auka­verk­anir getn­að­ar­varn­arpilla.

Fæðu­bót­ar­efni. Dagleg inn­taka á kalki, B-6 vítamín, magnesíum og L-Tryptófan er allt eitt­hvað sem dregið getur úr ein­kennum bæði fyr­ir­tíða­spennu og sjúk­legrar fyr­ir­tíða­spennu. Kalk er þar efst á lista. Þó skal ávallt ráð­færa sig við lækni áður en byrjað er að taka inn bæti­efni.

Jurtalyf á borð við Munkapipar (Vitex agnus-castus) er talið geta dregið úr tíða­tengdum vanda­málum. Sér­stak­lega er jurtin talin geta dregið úr skap­sveiflum, pirr­ingi, við­kvæmni í brjóstum, bólgum, verkjum og fæðu­löng­unum í tengslum við blæð­ingar.

Breyt­ingar á neyslu­venjum. Það getur gefið góða raun að minnka koff­ín­n­eyslu, hætta að reykja og draga úr eða hætta neyslu á áfengi.

Regluleg hreyf­ing.

Hollt og fjöl­breytt matar­æði.

Streitu­stjórnun – minnkuð streita og meiri slökun, til að mynda í formi hug­leiðslu, núvit­undar og jóga. Mik­il­vægt er að forð­ast óþarfa streitu á heim­ili og í sam­böndum.

Ef ofan­greind ein­kenni sjúk­legrar fyr­ir­tíða­spennu eiga við þig og blæð­ingar valda þér mik­illi van­líðan er mik­il­vægt að leita til læknis og fá aðstoð.

Heim­ildir: Mayo Clinic.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Fólk

Fólk

Anna fyr­ir­gaf þeim sem lögðu hana í ein­elti

„Ég vissi alveg hvað ég var að gera en það var leiðinlegt að þurfa að standa í þessu.“
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Laufey stal sen­unni á einni glæsi­leg­ustu tísku­há­tíð árs­ins

Fólk

Höllin við Sjafn­ar­götu hefur beðið eftir kaup­anda frá vor­inu 2023

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir