Miðvikudagur 17. apríl, 2024
3.1 C
Reykjavik

Frábært flatbrauð á grillið

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Nú fer að verða grillhæft, að minnsta kosti að mati okkar Íslendinga. Við erum þekkt fyrir að láta ekki smávegis rigningu eða lágt hitastig koma í veg fyrir að nota grillin okkar. Það er líka ákveðinn vorboði þegar grilllyktin gýs upp í görðum fólks.

Flest þekkjum við það í lok vinnudags að þurfa að ákveða hvað eigi að vera í matinn á meðan við keyrum frá vinnu í búðina. Í langflestum tilfellum þarf maturinn að vera fljótlegur og framreiddur án mikils tilstands áður en taugatitringur svangra fjölskyldumeðlima verður óbærilegur. Í slíkum tilfellum er tilvalið að nýta grillið og bólstra máltíðina með brauðmeti. Að grilla brauð er sáraeinfalt. Hér birtum við uppskrift sem bæði er fljótleg og afar ljúffeng. Það er að sjálfsögðu einfalt að taka út álegg eða bæta við eftir þörfum. Sósan kom mjög vel út og við mælum með henni.

Flatbrauð með steiktum lauk, sveppum og sesamsmjörssósu

12 tommu flatbrauð

Flatbökudeig
6 dl hveiti
2 ¾ tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
1 msk. ólífuolía
2,5 dl vatn

Álegg
6 msk. olía
4 stk. laukur, sneiddur
1 tsk. sjávarsalt
3 portobello-sveppir, sneiddir
1 askja Flúðasveppir, sneiddir
1 msk. hrísgrjónaedik
1 msk. sojasósa
1 msk. sambal oelek, chili-mauk
2 msk. ólífuolía, til penslunar
3 dl gouda-ostur, eða annar ostur, rifinn
1 dl parmesanostur,rifinn
hnefafylli klettakál
3 ferskar fíkjur, skornar í báta

Mynd / Aldís Pálsdóttir

Setjið þurrefnin í hrærivélarskál með hnoðara. Setjið olíu og vatn saman við í skömmtum. Hrærið þar til deigið hættir að festast við hrærivélarskálina. Þetta tekur u.þ.b. 3-5 mín. Það má líka gera þetta í höndum. Setjið til hliðar.

Hitið olíu á pönnu við meðalhita og setjið laukinn út á, steikið í 3-4 mín. án þess að hreyfa mikið við honum. Snúið honum einu sinni til tvisvar og steikið áfram í um 5 mín. eða þar til hann hefur brúnast vel, saltið og takið af hitanum og setjið til hliðar. Hitið 2 msk. olíu á pönnu og steikið sveppina í 5 mín. með smávegis af salti. Bætið ediki, sojasósu og chili-mauki út á pönnuna og hrærið vel saman við sveppina, bragðbætið með salti og pipar, takið af hitanum. Fletjið deigið út.

- Auglýsing -

Hitið grillið á meðalhita og penslið grillgrindina með olíu. Passið að hafa hana hreina áður en þið byrjið. Gott er hafa áleggið við höndina svo ekki þurfi að fara frá grillinu á meðan botninn grillast. Setjið botninn á grillið og eldið báðum megin í 2-3 mín. á hvorri hlið eða þar til góðar grillrendur hafa myndast. Snúið botninum með töng.

Takið botninn af grillinu og penslið með olíu, dreifið hluta af ostinum yfir, dreifið lauknum og sveppunum yfir ostinn og svo að síðustu afganginum af ostinum. Setjið aftur á grillið með lokið á þar til osturinn bráðnar, eða í um 3-5 mín., takið af grillinu. Stráið klettakáli og fíkjubátum yfir og berið fram með sósunni.

Græn sesamsmjörsósa
2 dl tahini-sesamsmjör
hnefafylli steinselja
safi úr einni sítrónu
1 dl ólífuolía
1 skalotlaukur
hnefafylli ferskt dill
2 hvítlauksgeirar
salt og pipar eftir smekk

- Auglýsing -

Setjið öll innihaldsefni í blandara og látið vélina ganga í um eina mín. eða þar til sósan er orðin silkimjúk og græn. Bragðbætið með salti og pipar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -