Fimmtudagur 18. apríl, 2024
1.1 C
Reykjavik

Ljúffeng og fljótleg: Hafrakaka með hindberjasultu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ljúffeng kaka sem fljótlegt er að henda í og ekki spillir fyrir að hún er í hollari kantinum.

Hafrakaka með hindberjasultu
250 g grófir hafrar, malaðir í fínt mjöl í matvinnsluvél
130 g hveiti eða heilhveiti
2 tsk. kanill
½ tsk. salt

50 g döðlusíróp
130 g olía
½ krukka sykurlaus hindberjasulta t.d. frá Dalfour
1 askja hindber, söxuð

Hitið ofninn í 180°C. Blandið öllum innihaldsefnunum nema sultunni og berjunum saman í skál og hrærið vel saman með sleif. Setjið helminginn af deiginu í eldfast mót og smyrjið sultunni og berjunum jafnt yfir. Myljið afganginn af deiginu yfir sultuna og berin. Bakið kökuna í 20 mínútur og skerið í ferninga þegar hún kemur út úr ofninum. Þessi kaka geymist ágætlega í nokkra daga ef svo ólíklega vill til að eitthvað verði eftir af henni.

Umsjón / Bergþóra Jónsdóttir
Stílisti / Bergþóra Jónsdóttir
Mynd / Hákon Davíð Björnsson

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -