Fimmtudagur 28. mars, 2024
3.8 C
Reykjavik

Þessi svíkur engan: Ljúffengur lasagna-réttur með basilíkupestói

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ferlega góður réttur og fljótlegur.

Spínat-lasagna með haloumi-osti og basilíku
fyrir 4-6

4 hvítlauksgeirar, saxaðir
1 rauðlaukur, saxaður
800 g ferskir kirsuberjatómatar, skornir gróft
3 msk. balsamedik
2 msk. kaldpressuð ólífuolía
sjávarsalt og nýmalaður pipar
hnefafylli fersk basilíka
500 g spínat
bragðbætið með sjávarsalti og nýmöluðum pipar
9 þurrkaðar heilhveiti lasagna-plötur
100 g rifinn mozzarella-ostur
200 g haloumi-ostur þunnt skorinn
4-5 heilir kirsuberjatómatar tómatar, má sleppa

Hitið ofninn í 180°C. Léttsteikið laukinn í potti í 1 msk. af olíu, þar til hann verður glær og bætið þá tómötum, ediki, restinni af olíu, salti og pipar saman við. Sjóðið allt í 20 mínútur eða þar til tómatarnir eru orðnir vel mjúkir og maukaðir. Sjóðið lasagna-plöturnar á meðan tómatarnir malla í 4-5 mín. í léttsöltu vatni. Setjið til hliðar. Látið basilíku og spínat saman við tómatana og hrærið vel í þar til allt hefur samlagast. Setjið 3 lasagna-plötur í botninn á því formi sem þið ætlið að nota og hellið 1/3 af tómatblöndunni yfir og 1/3 af mozzarella-ostinum. Endurtakið þetta tvisvar. Skerið haloumi- ostinn í sneiðar og raðið ofan á efsta lagið ásamt 4-5 heilum kirstuberjatómötum. Bakið í 20-25 mínútur eða þar til rétturinn er orðinn fallega brúnn að lit og er eldaður í gegn. Berið fram með góðu brauði og basilíkupestói.

Athugið: Hér er ekki notað hefðbundið ferkantað lasagna-form sem gefur réttinum grófara og frjálslegra yfirbragð. Lasagna-blöðin eru ekki öll ofan í sósunni og brúnast því aðeins í endanna og verða stökk.

Umsjón / Bergþóra Jónsdóttir
Mynd / Aldís Pétursdóttir
Stílisti / Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -