Fimmtudagur 25. apríl, 2024
10.1 C
Reykjavik

Vín og Matur er komið út: „Matreiðslublað sem höfðar til allra“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Vín og Matur er nýtt tímarit sem ég vona að lesendum komi til með að líka vel,“ segir Katrín Guðjónsdóttir umsjónamaður og ritstjóri blaðsins.

Tímaritið á að höfða til sem flestra, óháð aldri, kyni og kunnáttu fólks í eldamennsku. Þar getur fólk fundið uppskriftir fyrir hin ýmsu tilefni. Fljótlega rétti, eftirrétti og fróðleiksmola.
Barnafjölskyldur fá opnu í hverju tölublaði. Þar verða hugmyndir og uppskriftir sem allir geta tekið þátt í, börnin líka!
Vín og Matur hefur fengið sér til liðs Örn Erlingsson og Grétar Matthíasson matreiðslumenn sem munu deila með lesendum girnilegum uppskriftum.

„Þetta er frumraun mín þegar kemur að því að stjórna matreiðslublaði. Ég hef að vísu frábært fólk sem hefur leiðbeint mér og ég hef þegar ótal hugmyndir til þess að gera næsta blað betra og fallegra, maður vill að sjálfsögðu alltaf gera betur,“ segir Katrín.

Blaðið mun ekki eingöngu innihalda uppskriftir heldur einnig fróðleik og umfjallanir um hina ýmsu veitingastaði víðs vegar um landið.
Blaðið verður í frídreifingu í Bónus og geta því landsmenn kippt með sér eintaki i dag

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -