1
Heimur

Fékk boð upp á tæpa tvo milljarða fyrir meydóminn

2
Heimur

Mikill fjöldi slasaður eftir stórfurðulegt atvik í verslunarmiðstöð

3
Fólk

Virðulegur húsakostur í Hafnarfirði settur á sölu

4
Innlent

Breytti um nafn og kom sér aftur til Íslands

5
Heimur

Caleb Shomo kemur út úr skápnum

6
Heimur

17 létust í umferðarslysi

7
Heimur

Sjálfkeyrandi strætó var slysavaldur í Svíþjóð á fyrsta degi

8
Innlent

Fleiri berklasmit á Landspítalnum

9
Fólk

Landsliðskona Íslands ólétt

10
Heimur

Fundu lík 12 ára drengs við árbakka í Frakklandi

Til baka

Anna Hildur ráðin framkvæmdastjóri

„Hún kemur með ferskt sjónarhorn inn í heim ferðaverslunar“

Anna Hildur W Björnsdóttur framkvæmdastjóri mannauðs og menningar hjá Ísland Duty Free
Anna Hildur W BjörnsdóttirAnna Hildur er nýr framkvæmdastjóri mannauðs og menningar hjá Ísland Duty Free
Mynd: Aðsend

Ísland Duty Free hefur ráðið Önnu Hildi W Björnsdóttur í starf framkvæmdastjóra mannauðs og menningar hjá fyrirtækinu.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að Anna Hildur búi yfir víðtækri reynslu af mannauðs- og menningarmálum í alþjóðlegu rekstrarumhverfi. Hún hafi síðustu ár starfað á alþjóðamarkaði og síðast hjá Carbon Recycling International (CRI), þar sem hún sinnti mannauðs- og menningarmálum á Íslandi, í Danmörku, Póllandi og Kína.

Áður starfaði hún meðal annars sem mannauðsstjóri hjá Travelshift ehf. og Iceland Hotel Collection by Berjaya, auk þess að vera People & Culture Business Partner hjá IKEA.

Anna Hildur er með meistaragráðu í mannauðsstjórnun og meistaragráðu í sálfræði frá Háskóli Íslands.

Í tilkynningunni er haft eftir Liam Grundy að mikil ánægja ríki með ráðninguna.

„Við erum svo sannarlega heppin og mjög ánægð með að fá Önnu Hildi til liðs við okkur. Hún hefur sterkan bakgrunn, frábæra alþjóðlega reynslu og áralangan feril að baki við uppbyggingu og stefnumótun mannauðsmála þvert á landamæri,“ segir Liam meðal annars.

Hann segir jafnframt að gildi og sýn Önnu Hildar falli vel að stefnu fyrirtækisins.

„Hún endurspeglar vel þá menningu sem við viljum byggja upp, sem grundvallast á trausti og fjölskylduvænu samfélagi. Hún kemur með ferskt sjónarhorn inn í heim ferðaverslunar og við erum mjög spennt að hefja þá vegferð saman,“ segir hann.

Anna Hildur segir sjálf spennandi að ganga til liðs við fyrirtækið á þessum tímamótum.

„Það er virkilega spennandi að ganga til liðs við öflugt teymi Ísland Duty Free og taka þátt í áframhaldandi þróun fyrirtækisins á þessum tímamótum,“ segir hún.

Hún segir jafnframt að hún hafi á ferli sínum lagt ríka áherslu á að styðja starfsfólk og teymi í gegnum breytingar og að gagnkvæmt traust sé lykill að árangri.

„Nú þegar uppbyggingin á verslun Ísland Duty Free í Leifsstöð er á lokametrunum hlakka ég mikið til að vinna með teyminu að áframhaldandi uppbyggingu á framtíðarstefnu, starfsumhverfi og menningu fyrirtækisins,“ segir Anna Hildur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Segir Mossad hafa hótað sér vegna rannsóknar á þjóðarmorðinu
Heimur

Segir Mossad hafa hótað sér vegna rannsóknar á þjóðarmorðinu

„Þeir komu beint heim til mín“
Fimm unglingar drukknuðu í hitabylgjunni um helgina
Heimur

Fimm unglingar drukknuðu í hitabylgjunni um helgina

„Fá betri þjónustu fyrir sama pening“
Pólitík

„Fá betri þjónustu fyrir sama pening“

Rússar segjast leita að leynilegum stjórnstöðvum Úkraínu
Heimur

Rússar segjast leita að leynilegum stjórnstöðvum Úkraínu

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á hættulegu spili
Innlent

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á hættulegu spili

Helga Vala hamast gegn andstöðu við skjólshús Geðhjálpar
Innlent

Helga Vala hamast gegn andstöðu við skjólshús Geðhjálpar

Frakki sakaður um kynferðisbrot gegn leikskólabörnum
Heimur

Frakki sakaður um kynferðisbrot gegn leikskólabörnum

Svíar stórlækka verð í almenningssamgöngur
Heimur

Svíar stórlækka verð í almenningssamgöngur

Kona bitin á baðströnd á Lanzarote
Heimur

Kona bitin á baðströnd á Lanzarote

Landsliðskona Íslands ólétt
Fólk

Landsliðskona Íslands ólétt

Ástríðufull sena Sydney Sweeney í Euphoria vekur mikla athygli
Myndband
Heimur

Ástríðufull sena Sydney Sweeney í Euphoria vekur mikla athygli

Gabriel Ganley fallinn frá aðeins 22 ára að aldri
Heimur

Gabriel Ganley fallinn frá aðeins 22 ára að aldri

Peningar

Fyrrum Luxor-meðlimur stofnar fyrirtæki
Peningar

Fyrrum Luxor-meðlimur stofnar fyrirtæki

Hljómsveitin gaf út eina plötu
Súperdósin mætt aftur á markað
Peningar

Súperdósin mætt aftur á markað

Anna Hildur ráðin framkvæmdastjóri
Peningar

Anna Hildur ráðin framkvæmdastjóri

Helga Vala um stýrivaxtahækkunina: „Við getum breytt þessu“
Peningar

Helga Vala um stýrivaxtahækkunina: „Við getum breytt þessu“

Fyrrum landsliðsmaður stofnar fyrirtæki
Peningar

Fyrrum landsliðsmaður stofnar fyrirtæki

Fyrirtækið Framsókn tekið til gjaldþrotaskipta
Peningar

Fyrirtækið Framsókn tekið til gjaldþrotaskipta

Loka auglýsingu