Gísli Einarsson, ritstjóri Landans, var á miklum spretti á dögunum þar sem hann kynnti íslenskt viskí fyrir áhorfendum sínum í sjónvarpi allra landsmanna. Ritstjórinn lét ekki nægja að sýna vöruna á besta sjónvarpstíma heldur dreypti á áfenginu með tilheyrandi látbragði og „kjamsaði svo á drykknum þannig að áfengislöngunin blossaði upp í þurrustu ölkum,“ eins og sá harðskeytti blaðamaður Jakob Bjarnar Gétarsson orðaði það á Vísi.is. Landinn ber nafn sitt með sóma því ritstjórnin hefur áður fjallað um áfengi með svipuðum hætti. Þá er Halldór Halldórsson, Dóri DNA, duglegur við að kynna áfengi í þætti sínum, Veislan, í Ríkissjónvarpinu. Aðrir fjölmiðlar hafa gjarnan verið ofsóttir og dregnir fyrir dóm af Lýðheilsustofnum fyrir sambærileg mál. Sýnt þykir að RÚV hafi lagt upp í stríð gegn þeim ólögum sem eru að baki auglýsingabanni á áfengi í íslenskum fjölmiðlum …
Gísli og brennivínið

Helgarviðtalið
- Auglýsing -
Orðrómur
- Auglýsing -
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -