Miðvikudagur 27. mars, 2024
0.8 C
Reykjavik

Alþjóðleg vika snípsins var haldin hátíðleg: „Það þarf að passa að hann sé smurður“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Alþjóðleg vika snípsins var haldin í fyrsta skipti dagana 6.-12.maí 2013 og vakti hún mikil viðbrögð. Vikan var hugsuð sem vitundavakning fyrir snípinn sem ekki fengi næga athygli.

„Snípurinn er mjög vanmetinn því fólk veit ekki að hann er helsti unaðsstaður píkunnar og leið flestra til að fá fullnægingu er með örvun hans. Það þarf að passa að hann sé smurður áður en er nuddaður og er það hægt að gera með bleytu úr píkunni, munnvatni eða sleipiefni. Snípurinn er risavaxið líffæri en aðeins hluti af honum er sýnilegur,“ sagði kynfræðingurinn Sigga Dögg í samtali við Smartland á MBL.

Sigga Dögg sagði ákaflega sorglegt hve lítið er fjallað um snípinn í fræðiritum og sé þessi vitundavakning því nauðsynleg enda sé hann ein helsta leið til unaðar. Þegar hún var spurð hvað hún leggi til að konur geri í þessari viku tileinkaðari snípnum svarar hún:

„Þetta er bara liður í því að leyfa kon­um að setja kröf­ur á kyn­lífið og sjálfa sig og maí er alþjóðleg­ur sjálfs­fró­un­ar­mánuður svo þetta fer einkar vel sam­an, kon­ur virðast ekki rúnka sér jafnoft og karl­menn og byrja seinna á því en margt væri hægt að laga í sam­bönd­um og kyn­lífi ef báðir aðilar pössuðu upp á að sinna sér.“

Sigga Dögg hélt upp á vikuna með því að fræða landann. Hún hélt fyrirlestraröð fyrir norðan, ræddi málin í útvarpi og skrifaði greinar. Lítið hefur verið rætt um þessa áhugaverðu vitundavakningu sem leit fyrst dagsins ljós fyrir níu árum.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -