Fimmtudagur 25. apríl, 2024
10.1 C
Reykjavik

„Óþolandi að kynbundið ofbeldi líðist“ – „Misrétti eins og á sem finnur sér sífellt nýjan farveg“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Í ár fögnuðum við að 106 ár eru liðin frá því að konur fengu fyrst almennan kosningarétt á Íslandi, samhliða því að eignalausir karlar hlutu rétt til að ganga kjörborðinu,“ skrifar verkalýðsforinginn baráttuglaði, Drífa Snædal, og bætir við:

„Á réttindum kvenna voru þó takmarkanir þar sem ótti var við að konur myndu hreinlega taka lýðræðið yfir ef þær fengju allar kosningarétt á einu bretti. Því voru aldursmörk rituð inn í lögin en þau áttu smám saman að taka breytingum. Fimm árum síðar var vikið frá þessari þróun og  skrefið stigið til fulls,“ skrifar Drífa og nefnir að „þetta var stærsta formlega skrefið sem stigið hefur verið í lýðræðisátt á síðari tímum svo ekki sé talað um í kvenfrelsisátt. Þarna fengu konur í fyrsta sinn eitthvað að segja um hvaða fulltrúar tækju ákvarðanir sem varða þeirra líf og gátu haft áhrif með því að bjóða sig fram til Alþingis.“

Hún skrifar einnig að „rúmri öld síðar hefur jafnrétti ekki verið náð. Við sjáum það í launamisrétti, misrétti í eignastöðu, misjöfnu álagi vegna fjölskyldulífs og launalausri umönnun. Birtingarmyndin er hvað skýrust þegar litið er til kynbundins ofbeldis og það er óþolandi að slíkt ofbeldi skuli líðast í svo miklum mæli að það er hreinlega hversdagslegt,“ skrifar Drífa og snýr sér svo að #metoo:

„Sú bylgja sem nú gengur yfir og er kennd við #metoo er enn ein áminning þess að kynbundið ofbeldi hefur þrifist allt of lengi. Enn og aftur rísa konur upp gegn ofbeldinu og svona bylgjur munu rísa aftur og aftur þangað til konur finna til öryggis, þangað til kerfin okkar ná utan um glæpina og kyn hefur ekki áhrif á virði eða frelsi. Þangað er töluvert í land og ýmsum tilraunum til að auka jafnrétti hefur verið hrint í framkvæmd en misréttið virðist vera eins og á sem finnur sér sífellt nýjan farveg.

Einn lykill í baráttunni fyrir jafnrétti er að okkur takist að leggja mat á ólík störf og verðleggja þau óháð því hvort þau eru hefðbundin karlastörf eða hefðbundin kvennastörf. Vinna við slíka útfærslu er nú í gangi sem næsta skref í þessari baráttu og er þar til mikils að vinna“ segir Drífa í pistli sem birtist á vefmiðlinum bb.is.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -