Fimmtudagur 25. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Rukkuð fyrir það sem þau borðuðu ekki

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Nú ferðast flestir innanlands, enda fátt annað í boði og landið okkar dásamlegt!

Þó er það nú þannig að margir reyna að maka krókinn og neytendur fá stundum illa á baukinn þegar hungrið sverfur að. Þetta fékk Herdís Inga Óskarsdóttir að reyna er hún pantaði sér borgara á Húsavík í kvöld, ásamt fjölskyldu sinni.

Sanngjarnt getur talist að rukkað sé fyrir viðbótarálegg, t.d. á borgara eða flatböku, en hingað til hefur ekki tíðkast að innheimt sé fyrir mat sem sleppt er. Á Facebook-síðunni Matartips hefur færslan um Veitingahúsið Sölku á Húsavík (færsla Herdísar) vakið gríðarleg viðbrögð og hafa nokkrir bent á að vonandi sé um mistök að ræða. Hér má sjá færsluna:

Sé þetta allt á misskilningi byggt má þó velta fyrir sér hvort eðlilegt geti talist að rukka 150 krónur fyrir hvert það grænmeti sem viðskiptavinur óskar eftir á borgarann. Að því gefnu að ekkert grænmeti var á borgaranum sem berstrípaður kostaði 2.350 krónur.

Hafi maður, skv. færslu, verið svo ólánssamur að panta ostborgara og ekki viljað ostinn þá kostar það 150 krónur að láta fjarlægja ostinn.

- Auglýsing -

Sem fyrr segir létu viðbrögðin ekki á sér standa á Facebook og ekki má nú vanmeta gildi samfélagsmiðla. Hér gefur að líta örfá dæmi um viðbrögð við færslunni:

„Takk fyrir að deila þessu. Hafði einmitt hugsað mér að heimsækja þennan stað í sumar. En ég ætla að sleppa því.“
„Einn laukur kostar um 20 krónur úti búð.. just saying 😶
Þetta er galið verð og fáránlegt að það sé rukkað fyrir að sleppa eh…
Sem betur fer voru þið ekki með börn þið hefðuð farið á hausinn 😅“
„hvernig er hægt að réttlæta það að RUKKA viðskiptavin fyrir það td að vilja ekki ost á borgarann?? Eru þeir gerðir fyrirfram og þarf að fara í þá aðgerð að fjarlægja ostinn??“

Ekki náðist í fólkið í brúnni á veitingastaðnum Sölku á Húsavík við vinnslu fréttarinnar en vonandi er viðbragða að vænta áður en langt um líður. Eftir sem áður verður að teljast nokkuð dýrt að borga 150 krónur fyrir rauðlauk á hamborgara og 450 krónur fyrir 0.3l af appelsíni.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -