Leikarinn Ben Affleck er búinn að setja fallegt sveitasetur sitt á Hampton Island í Georgíu á sölu. Ásett verð eru 8,9 milljónir dollara, eða tæpur milljarður króna.
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2020/05/171012124022-ben-affleck-2017-exlarge-169.jpg)
Húsið er ekkert slor og telur tæplega 560 fermetra. Það er búið fjórum svefnherbergjum og fjórum baðherbergjum og er æðislegt útsýni yfir North Newport ána.
Útisvæðið er einnig skemmtilegt en á því er fullbúið eldhús. Þá fylgir húsinu einnig herbergi sem minnir um margt á litla líkamsræktarstöð, sem og rúmgott bókaherbergi.
Hér fyrir neðan má sjá fleiri myndir af þessu fallega heimili: