Föstudagur 29. mars, 2024
-3.2 C
Reykjavik

Örbirgð í auðugu landi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í jólamánuðinum flæða minningarnar fram sem beljandi foss.  Ég dvel við liðna tíma. Ég sé sjálfa mig sem litla telpu heima hjá pabba og mömmu þar sem jólandinn sveif yfir og allt um kring. Þar sem mamma var í aðalhlutverki, vakti fram á nætur, bakaði, eldaði og pússaði allt sem hönd á festi. Þar sem fárviðri geysaði utan við gluggann minn með tilheyrandi snjókomu sem færði allt á bólakaf.  Allt var hjúpað töfraljóma og ólýsanlegri tilhlökkun.  Alveg sama hvað á gekk hjá fullorðna fólkinu, okkur börnunum var haldið fyrir utan það.  

Nú er öldin önnur og ekki nokkur leið að loka augnum fyrir því óréttlæti og þeim hörmungum sem þúsundir íslenskra barna mega þola í dag. Í gjörbreyttu samfélagi þar sem gildi og viðmið eru öll önnur en þegar ég var að alast upp.  Þetta eru börn sem oft leggjast svöng á koddann á kvöldin þar sem fátæktin er slík að hver króna fer í að greiða græðgisvæddum leigufélögum fyrir húsaskjól á okurverði.  Þetta eru börnin sem fá helst að borða hjá hjálparstofnunum sem reyna eftir fremsta megni að úthluta þeim mat.  Hjálparstofnanir sem meiri hluti alþingismanna undir agavaldi ríkisstjórnarinnar sagði nei við að styrkja um 150 millj. króna fyrir jólin. Þetta eru börnin sem fara í jólaköttinn fá hvorki ný föt né nýja skó. Þetta er börnin sem eiga frekast á hættu að vera lögð í einelti, börnin sem fá engar tómstndir sem kosta peninga af því að þeir eru einfaldlega ekki til.  Ég þarf ekki að tíunda frekar um það sem liggur í framtíð flestra þessara barna. Þið vitið það öll. 

Stjórnleysi, trúleysi, virðingarleysi er það sem svífur yfir vötnunum í dag. Stjórnvöld láta sér á sama standa þótt fólk eigi hvorki í sig né á. Sama þótt fólk eigi ekki í nein hús að vernda. Málin eru sett í nefnd. Með öðrum orðum, ábyrgðinni er fleygt út um gluggann. Þessir svo kölluðu valdhafar hafa hvorki visku né getu til að takast á við þau verkefni sem þau voru kjörin til að sinna.  Ég hlýt að draga þá ályktun fremur en að halda að þessir einstaklingar séu mannvonskan holdi klædd.  Eitt er þó alveg víst að öll þessi yfirgengilega fátækt, allt þetta vonleysi tug þúsunda Íslendinga er í boði stjórnvalda.  Það er nöturlegt til þess að vita að Alþingi Íslendinga-æðsta stofnun þjóðarinnar skuli ekki sjá sóma sinn í því að rétta þeim hjálparhönd sem búa hér í sárri neyð, heldur þvert á móti múra en rammgerðari fátækragildru um þá sem þau voru kjörin til að vernda. Þetta er allt mannanna verk! 

Inga Sæland formaður Flokks fólksins

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -