Föstudagur 26. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Stórskemmtilegar sögugöngur Minjasafnsins á Akureyri

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Það er ekki ofsögum sagt að starfsemi Minjasafnsins á Akureyri sé afar fjölbreytt, enda stendur safnið fyrir fjölmörgum viðburðum auk sýningarhalds og heimsókn á safnið er eitthvað sem enginn sér eftir.

Markmið safnsins er að safna; varðveita og rannsaka menningarsögulegar minjar; einkum þær sem eru lýsandi fyrir daglegt líf og atvinnuvegi í hinum gullfallega Eyjafirði.

Leitast er í sýningum safnsins við að gefa góða innsýn í sögu og menningu héraðsins.

Það er óhætt að segja að Minjasafnið sé annað og mun meira en sýningarsalur enda er starfsemi þess mun fjölbreyttari en mögulega virðist við fyrstu sýn.

Bersýnilegar eru á safninu glæsilega sýningar og viðburðir, en starfsemin grundvallast hins vegar á að safna; varðveita; rannsaka og fræða.

Minjasafnskirkjan falleg í vetrarbúningi. Mynd fengin af vef Akureyrar.

Gerir góðar stundir enn ógleymanlegri

- Auglýsing -

Minjasafnskirkjan er stærsti gripur Minjasafnsins; hún er svartbikuð timburkirkja sem stendur norðan við Minjasafnsgarðinn. Kirkjan var upphaflega á Svalbarði, austanmegin Eyjafjarðar, en hana reisti kirkjusmiðurinn Þorsteinn Daníelsson frá Skipalóni árið 1846. Kirkjan svartbikaða er gott dæmi um íslenskar sveitakirkjur sem reistar voru á Íslandi um miðbik nítjándu aldar.

Það er gaman að segja frá því að hægt er að leigja fornfrægu og fallegu Minjasafnskirkjuna í hinum rómaða bæ Akureyri, fyrir athafnir eða tónleika, og falleg kirkjan, glæsilegt umhverfi og gott andrúmsloft gera athafnir og tónleika enn ógleymanlegri en ella.

Einn örfárra varðveittra íslenskra skrúðgarða

- Auglýsing -

Þá er svo sannarlega vert að minnast á Minjasafnsgarðinn sem er klárlega ein af perlum Minjasafnsins og Akureyrar, og er safngripur í sjálfu sér. Garðurinn er einn örfárra varðveittra íslenskra skrúðgarða frá aldamótunum 1900. Sjón er sögu ríkari.

Áhugasömum um þetta fallega og fróðlega safn er bent á að opnunartími þess er eftirfarandi:
Opið frá 10-17 alla daga frá 1. júní til 1. október. Frá 2. október til 31. maí er opið daglega frá 13-16. Opnað er fyrir hópa utan þess tíma. Einnig er hægt að skoða safnið á virkum dögum á opnunartíma skrifstofunnar frá kl. 8-16, samkvæmt  samkomulagi og er síminn 462 4162.

Aðgengi

Minjasafnið er í 20 mínútna göngufjarlægð frá miðbæ Akureyrar og vilji fólk taka strætó þá eru það leiðir 5 og 6.

Gamli bærinn í Laufási er opinn frá 9-17 alla daga frá 2. júní til 1. september. Frá 16. september er hann opinn eftir samkomulagi. Hægt er að leigja Gamla prestshúsið í Laufási fyrir fundi og veislur. Nánari upplýsingar í síma: 895 3172.

Stórskemmtilegar sögugöngur

Og eins þetta sem bent hefur verið á sé ekki nóg þá býður Minjasafnið á Akureyri upp á gönguferðir með leiðsögn um Akureyri fyrir hópa ef óskað er. Í þessum skemmtilegu og fróðlegu gönguferðum safnsins gefst tækifæri til að fræðast um sögu Akureyrar á einstakan hátt.

Gengið er um elstu hverfi bæjarins; staldrað við merkileg hús; göngufólk frætt um sögu húsanna og íbúa fyrr á tíð.

Minjasafnið hóf þessar einkar athyglisverðu og vel skipulögðu sögugöngur fyrir nokkrum árum og ríkir mikil ánægja með göngurnar enda hefur þátttaka í þeim farið vaxandi með hverju árinu, og ferðirnar svo sannarlega komnar til að vera.

Bæjarbúar hafa verið einkar duglegir að mæta í auglýstar göngur og gaman er að geta þess að á undanförnum misserum hefur færst í vöxt að slíkar göngur séu pantaðar af hópum sem leggja leið sína til Akureyrar.

Slíkar göngur – sem Minjasafnið býður upp á – hafa verið mjög vinsælar sem hluti af dagskrá árshátíða eða ráðstefna; boðið er upp á nokkrar sögugöngur: Má þar nefna Innbæjargöngu um gömlu Akureyri – á íslensku, en sögugöngur fyrir hópa þarf að panta með um það bil tveggja vikna fyrirvara og fer verð eftir fjölda þátttakanda hverju sinni.

Draugaslóð

Einnig stendur Minjasafnið fyrir fjölmörgum viðburðum og Draugaslóð safnsins á Akureyrarvöku – í lok ágúst – hefur öðlast fastan sess í huga Akureyringa og er ákaflega vel sótt. Þá er einnig boðið upp á söngvökur, sem eru nokkurs konar ferðalag um sönghefð Íslendinga í tónum í Minjasafnskirkjunni; hægt er að panta allan ársins hring, en söngvaka kostar 45.000 krónur og viðburðir eru auglýstir sérstaklega.

Hér eru upplýsingar um aðgangseyri, dagskort og árskort. 

Aðalstræti 58
IS-600 Akureyri
Sími: 462 4162 / Fax: 461 2562
Netfang: [email protected]
Heimasíða: minjasafnid.is

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -