Í ágúst á því herrans ári 1987 sáu nokkur börn sem voru að leik fyrir utan fjölbýlishús á Akureyri, tvær rottur og urðu forvitin.
Rotturnar voru risastórar en börnin ákváðu að reyna að hræða þær og króguðu þær af. En þá greip önnur rottanna til varna og réðist á sjö ára dreng sem ætlaði sér eitthvað með hana. Beit hún drenginn sem í kjölfarið var fluttur á sjúkrahús þar sem gert var að sárum hans og hann sprautaður. Ekki fylgdi sögunni hvort meindýraeyðir hafi verið fenginn til að fella rottuna, eða hvort refaskytta hafi verið fengin í verkið, svona miðað við stærðina á kvikindinu.
Hér má lesa stutta frétt DV af málinu frá 19. ágúst 1987:
Akureyri: Risarotta beit bam
Risastór rotta beit sjö ára gamlan dreng í puttann við fjölbýlishús á Akureyri í síðustu viku. Drengurinn var fluttur á sjúkrahús þar sem sár hans var hreinsað og hann sprautaður. Nokkur börn voru að leik fyrir utan fjölbýlishúsið þegar þau sáu tvær rottur. Börnunum þótti þetta spennandi, reyndu að hræða rotturnar og tókst að króa þær af. Pilturinn, sem var bitinn, ætlaði þá að gera eitthvað við aðra þeirra en hún snerist þá til varnar og beit hann í puttann. „Ég hef ekki séð svona stóra rottu áður, hún var risastór og biksvört,“ sagði Hallgrímur Aðalsteinsson, íbúi við fjölbýlishúsið, um stærð rottanna.