Miðvikudagur 27. mars, 2024
0.8 C
Reykjavik

Ásmundur Einar: „Hvorki í mínu valdi né aðstoðarmanna að lofa einstökum félögum háum fjárhæðum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Mennta- og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, segir í samtali við Vísi að það sé ekki rétt að aðstoðarmaður hans hafi lofað íþróttafélaginu ÍBV hundrað milljóna króna styrk út af tekjubresti í heimsfaraldrinum.

Hann segir það hvorki hlutverk hans né aðstoðarmanna hans að lofa einstökum íþróttafélögum stórum fjárhæðum; það sé fjárlaganefnd sem fari með úthlutunarvald í málaflokknum.

Kemur fram að greint var frá því í gær, að Haraldur Pálsson framkvæmdastjóri ÍBV, hefði sent fjárlaganefndinni erindi þar sem Haraldur óskaði eftir að nefndin tryggði að ríkið greiddi ÍBV 60 milljóna króna eftirstöðvar af hundrað milljóna króna styrk; hélt Haraldur því enn fram að aðstoðarmaður Ásmundar Einars hafi „staðfest að félagið fengi 100 milljónir króna úr sjóðnum bæði í samtölum og í smáskilaboðum.“

Ásmundur Einar sagði í samtali við Vísi að fjárlaganefnd hafi samþykkt fjárveitingu til ÍBV:

„Það var þannig að skilaboðin sem samþykkt voru á Alþingi kölluðu á það að við færum í samtal við fleiri íþróttafélög; úr varð miklu stærri úthlutun sem er nú búið að samþykkja fjárveitingar til upp á hátt í hálfan milljarð, sem þetta rennur inn í. Og er til allra íþróttafélaga og þar með ÍBV.“

Hann er spurður um orð aðstoðarmanns hans:

- Auglýsing -

„Eins og ég segi, að fjárlaganefnd samþykkti ákveðnar fjárhæðir þarna og það var með þeim skilyrðum að við ættum að skoða þetta í víðara samhengi. Það gerðum við og unnum eftir því. En hins vegar skil ég vel stöðu ÍBV sem voru búin að undirbúa þjóðhátíð og allt slikt, þannig að við munum reyna að vinna það líka.“

Hann segir það ekki rétt að aðstoðarmaður hans sé að lofa einhverju upp í ermina á sér:

„Það er bara ekki rétt. Það er fjárveitingavaldið, það er fjárlaganefnd á Alþingi sem fer með fjárveitingar. Það var gert í þessu tilfelli, það var sérstaklega tekið fram að þetta væri til ÍBV og annarra félaga sem væru í sambærilegri stöðu.“

- Auglýsing -

Ásmundur Einar kannast ekki við að aðstoðarmaður hans hafi lofað peningum til ÍBV:

„Ég kannast ekki við það. Það er fjárlaganefnd sem lagði þetta til, ákveðnar fjárveitingar og stuðning með þessum hætti. Það höfum við unnið enda er það hvorki í mínu valdi né aðstoðarmanna að lofa einstökum félögum háum fjárhæðum. En það er hins vegar líka rétt að ÍBV varð fyrir miklu tjóni þegar þjóðhátíð var slaufað í Covid-faraldri. Og ástæða þess að brugðist var við af hálfu fjárlaganefndar og ríkisvaldsins var meðal annars sú. En það eru fleiri íþróttafélög í þessari stöðu og við erum að vinna með það.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -