Rafmagnsleysið á Suðurnesjum olli miklum usla og nú hefur sveitarstjórn Voga á Vatnsleysuströnd sakað Landsnet um að reka áróðursherferð gegn sveitarstjórninni; gefa í skyn að stjórnin beri ábyrgð á því tjóni sem varð vegna rafmagnsleysisins, en svo segir í bókun skipulagsnefndar sveitarfélagsins.
Fram kemur á ruv.is að nefndin tók á fundi sínum fyrir umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi vegna Suðurnesjalínu 2 – en afgreiddi hana þó ekki; óskar hún eftir áliti Skipulagsstofnunar um endurskoðun á umhverfismati „í ljósi þess að goshrina er nú hafin á Reykjanesi.“
Bæjarstjóri Voga, Gunnar Axel Axelsson, sagði að vissulega væri sveitarstjórnin undir miklum þrýstingi að afgreiða framkvæmdaleyfi Suðurnesjalínu 2. Hin þrjú sveitarfélögin sem línan á að liggja um hafa veitt framkvæmdaleyfi, en sveitarstjórn Voga ekki; Vogar vilja að línan verði lögð í jörð; það telur Landsnet óraunhæft og alltof dýrt.
„Ég er jákvæður og bjartsýnn á að það komist niðurstaða í þetta mál innan skamms tíma,“ segir Gunnar Axel og bætir við:
„Hér erum við að taka stjórnvaldsákvörðun og þær þurfa að standast skoðun.“