Föstudagur 26. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Biskup rak Skírni frá kirkjunni en borgar laun út starfsævina

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands, rak séra Skírni Garðarsson, héraðsprest á Suðurlandi, úr starfi sínu en segir í yfirlýsingu að misskilningur ráði umfjöllun. Mannlíf fjallaði um Skírnismálið í síðasta tölublaði þar sem brottreksturinn var settur í samhengi við fyrri væringar biskups og prestsins. 

Misskilnings eða rangfærslna hefur gætt í umfjöllun um mál sr. Skírnis Garðarssonar. Skírnir hefur lokið þjónustu sinni fyrir þjóðkirkjuna vegna brots á trúnaðarskyldu. Réttindi hans í ráðningarsamningi eru hins vegar óbreytt og verða að öllu virt,” segir í yfirlýsingu biskups. 

Brottrekstur Skírnis er þannig skilgreindur með öðrum hætti en venja stendur til. Biskup segir að Skírnir haldi launum sínum út starfsævina sem lýkur í haust.  

Réttindi hans í ráðningarsamningi eru hins vegar óbreytt og verða að öllu virt. Umfjöllun um að kirkjan hafi brotið á honum með uppsögn á ráðningarsamningi er því röng,” segir í yfirlýsingunni. 

Sérfræðingar í vinnurétti sem Mannlíf hefur rætt við eru sammála um að þarna sé um að ræða brottrekstur og að starfsmaðurinn hafi verið smánaður með þeirri aðferð að vísa honum á dyr af vinnustað sínum. 

Í yfirlýsingu biskups er einnig vikið að starfslokum Skírnis við Lágafellskirkju. Skírnir sagði frá því í viðtali við Stundina á sínum tíma að biskup hefði sett honum afarkosti. Hann yrði annaðhvort að samþykkja að verða fluttir í annað embætti eða sæta brottrekstri. Agnes hefur ekki fyrr en nú mótmælt þeim orðum. Í desember 2015 fékk Skírnir símtal frá Agnesi biskupi sem tilkynnti honum að hann yrði að hætta í Lágafellssókn.

- Auglýsing -

„Biskup setti mér þá kosti að skrifa undir eða að ég yrði færður til með handafli. Eftir nokkra fundi skrifaði ég nauðugur undir. Það gerði ég gegn ráðgjöf félaga minna í Prestafélaginu og Bandalagi háskólamanna. En ég var bugaður og lét undan ítrekuðum þrýstingi, símtölum og tölvupóstum frá Biskupsstofu. Það var svo harkalega að þessu staðið að ég fékk ekki einu sinni að kveðja söfnuð minn,“ sagði Skírnir við Stundina árið 2018. 

Þá er rangt að Skírni hafi áður verið vikið úr starfi. Hann var færður til í starfi árið 2016 að eigin ósk með gagnkvæmum samningi,” segir í yfirlýsingu biskups. 

Séra Skírnir er í veikindaleyfi þessa dagana og vill ekki láta hafa neitt eftir sér um stöðu mála. Innan kirkjunnar gætir talsverðar óánægju vegna framgöngu biskups. Fæstir úr hóipi presta þora þó að tjá sig um málin opinberlega af ótta við að verða fyrir reiði biskups.

- Auglýsing -

Sjá yfirlýsingu biskups í heild:

Vegna viðtals við Skírni Garðarsson og umfjöllunar um þjónustulok hans í fjölmiðlum er eftirfarandi upplýsingum komið á framfæri.

Misskilnings eða rangfærslna hefur gætt í umfjöllun um mál sr. Skírnis Garðarssonar. Skírnir hefur lokið þjónustu sinni fyrir þjóðkirkjuna vegna brots á trúnaðarskyldu. Réttindi hans í ráðningarsamningi eru hins vegar óbreytt og verða að öllu virt. Umfjöllun um að kirkjan hafi brotið á honum með uppsögn á ráðningarsamningi er því röng.

Skírni var gefinn kostur á að skýra mál sitt frekar sem hann og gerði í bréfi. Þær útskýringar breyttu ekki afstöðu kirkjunnar um að afþakka þjónustu hans.

Skírnir verður sjötugur á haustmánuðum n.k. og þá lýkur hans ráðningarsambandi við þjóðkirkjuna.

Þá er rangt að Skírni hafi áður verið vikið úr starfi. Hann var færður til í starfi árið 2016 að eigin ósk með gagnkvæmum samningi.

Til presta leitar fólk með alla flóru mannlegra tilfinninga, í erfiðum og viðkvæmum aðstæðum, í gleði eða dimmum dal sorgar. Trúnaðarskylda presta er algild, nema hvar lögin segja annað.

Afstaða biskups er skýr. Kirkja fólksins, þjóðkirkjan, er staður þar sem fólk nýtur skjóls, trúnaðar og virðingar.

Hafi, í gegnum tíðina, skort á fumleysi og ákveðni af þjóðkirkjunnar hálfu gagnvart brotum presta gegn fólki sem myndar kirkjuna og nýtir hana, er þeim tíma lokið.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -