Föstudagur 26. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Bjarnheiður fordæmir verkfall Eflingarfólks á hótelum: „Áróðursvélar Eflingar hamast linnulaust“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Fólkið sem rekur ferðaþjónustufyrirtækin er kallað öllum illum nöfnum og stillt upp sem ótýndum glæpamönnum, sérstaklega ef fyrirtækin hafa náð að skila einhverjum arði – sem auðvitað er harðbannað og svívirðilegt í augum Eflingar,“ skrifar Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka í ferðaþjónustu, um verkfallsaðgerðir Eflingar gegn hótelum á höfuðborgarsvæðinu. Grein hennar ber yfirskriftina, Nú er nóg komið.

Bjarnheiður fordæmir framgöngu Eflingarfólks í aðsendri grein á Vísi.

„Áróðursvélar Eflingar hamast linnulaust – bæði nafnlaust og undir nafni – við að mála ferðaþjónustu upp sem þrælakistu þar sem ekki er hugsað um neitt annað en að maka krókinn á kostnað þeirra lægst launuðu,“ skrifar hún.

Bjarnheiður bendir á að svo virðist sem verkalýðsfélagið telji við hæfi að ráðast á atvinnugrein sem sé nánast á hnjánum eftir að hafa gengið í gegnum tveggja ára barning vegna Covid.

„Nú, á meðan greinin er enn á hnjánum eftir heimsfaraldur, finnst Verkalýðsfélaginu Eflingu það frábær hugmynd að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur og höggva í ferðaþjónustu, smátt og smátt, þar til að hún lamast algjörlega,“ skrifar Bjarnheiður.

Grein Bjarnheiðar í heild sinni á Vísi.

- Auglýsing -

Nú er rétt ár liðið frá því að síðustu sóttvarnaraðgerðum var aflétt á landamærum Íslands, eftir tveggja ára barning og ólýsanlega erfiðleika allra í ferðaþjónustu. Endurreisn og viðspyrna greinarinnar hefur síðan verið öllum vonum framar, sem betur fer fyrir alla Íslendinga. Gatið sem tekjur af ferðamönnum skildi eftir sig í ríkissjóði var það stórt að endurkoma ferðamanna varð mikilvægasta breytan í öllum hagspám á Íslandi.

En Adam var ekki lengi í Paradís. Hinn nýi (eða öllu heldur gamli) skóli verkalýðsleiðtoga þessa lands virðist leggja sérstaka fæð á ferðaþjónustu. Nú, á meðan greinin er enn á hnjánum eftir heimsfaraldur, finnst Verkalýðsfélaginu Eflingu það frábær hugmynd að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur og höggva í ferðaþjónustu, smátt og smátt, þar til að hún lamast algjörlega.

Áróðursvélar Eflingar hamast linnulaust – bæði nafnlaust og undir nafni – við að mála ferðaþjónustu upp sem þrælakistu þar sem ekki er hugsað um neitt annað en að maka krókinn á kostnað þeirra lægst launuðu. Fólkið sem rekur ferðaþjónustufyrirtækin er kallað öllum illum nöfnum og stillt upp sem ótýndum glæpamönnum, sérstaklega ef fyrirtækin hafa náð að skila einhverjum arði – sem auðvitað er harðbannað og svívirðilegt í augum Eflingar. Það væri auðvitað miklu betra fyrir starfsmenn að fyrirtækin væru öll á hausnum. Í þessu samhengi er rétt að minna á það enn einu sinni, að langflest ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi eru lítil eða meðalstór og rekin af venjulegu fjölskyldufólki.

- Auglýsing -

Nái fyrirætlanir og verkfallsboðanir Eflingar fram að ganga, þá líður ekki á löngu, þar til ferðaþjónusta á öllu landinu lamast. Ferðaþjónusta byggir á samvinnu margra ólíkra fyrirtækja, sem starfa í nokkurs konar keðju – ef einn hlekkurinn slitnar, þá er voðinn vís. Erlendir ferðamenn munu afbóka ferðir sínar til landsins, gjaldeyristekjurnar hætta að streyma til landsins, fólk missir vinnuna, verðbólgan mun halda áfram að aukast og orðspor áfangastaðarins mun bíða hnekki. Er það það sem við viljum að gerist? Ætlum við að leyfa því að gerast?

Verkföll eru skilgreind sem ein af höfuðógunum ferðaþjónustu – við hliðina á náttúrhamförum, stríðsrekstri, farsóttum og hryðjuverkaógn. Við höfum á allra síðustu árum þurft að kljást við ýmsar ógnanir og þurfum á þessum tímapunkti alls ekki á heimagerðum hamförum í boði Eflingar að halda.

Höfundur er formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -