Miðvikudagur 8. maí, 2024
3.8 C
Reykjavik

Brúneggja-bræður áfrýja dómi héraðsdóms – Telja MAST og RÚV hafa gengið of langt

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fyrrverandi eigendur Brúneggja ehf. – bræðurnir Kristinn Gylfi og Björn Jónssynir, ætla sér að áfrýja dómi héraðsdóms í máli þeirra gegn Ríkisútvarpinu og Matvælastofnun, í Brúneggjamálinu.

Fyrir jól sýknaði Héraðsdómur Reykjavíkur Ríkisútvarpið og MAST af öllum kröfum bræðranna, en það var Fréttablaðið sem greindi fyrst frá.

Fréttaskýringaþátturinn Kastljós fjallaði árið 2016 um starfsemi Brúneggja; nokkrum mánuðum síðar fór fyrirtækið í þrot.

Var í um fjöllun Kastljóss greint frá ítrekuðum athugasemdum Matvælastofnunar við starfsemi Brúneggja; lýst var mjög slæmum aðstæðum á búum Brúneggja; lélegum loftgæðum, þrengslum og slæmu ásigkomulagi varphæna.

Einnig kom fram í umfjöllun Kastljóss að starfsfólk Matvælastofnunar hefði um langt árabil talið að eggjaframleiðandinn Brúnegg blekkti neytendur vísvitandi með sölu á vistvænum eggjum fyrirtækisins.

Málatilbúnaður bræðranna Kristins Gylfa og Björns byggði á því að umfjöllun RÚV hafi verið ómálefnaleg og Matvælastofnun hafi gengið of langt við heimildagjöf.

- Auglýsing -

Bæði RÚV og MAST væru sek um saknæma og ólögmæta háttsemi; því skaðabótaskyld vegna gjaldþrots fyrirtækisins.

Dómurinn hafnaði þessum sjónarmiðum og sýknaði báðar stofnanir.

Bræðrunum var gert að greiða málskostnað beggja gagnaðila; 8 milljónir króna.

- Auglýsing -

Taldi dómurinn að það tjón sem Brúnegg varð fyrir, yrði ekki rekið til neins sem starfsmenn RÚV eða MAST gerðu. Frekar væri hægt að reka tjónið, gjaldþrot Brúneggja, til þess hvernig að starfseminni fyrirtækisins var staðið.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -