Diljá nokkur, íbúði Laugarneshverfis, segir vonda lykt í hverfinu svo megna að hún geti ekki verið úti á svölum á heimili sínu. Hún vill vita hvaðan hún kemur.
Diljá gerir fnykinn að umtalsefni í færslu í hópi hverfisbúa á Facebook. Þar segir hún:
„Eruð þið að finna þessa viðbjóðslegu lykt??
Alveg!!
Kv Indriði.
En nei í alvöru, hvet alla sem finna að tilkynna þessa lýsisbrælu. Ég flúði inn af svölunum núna. Hef stundum fundið hana snemma á morgnanna líka. Áburðarverksmiðjan sver hana af sér en ég kaupi það ekki.“
Þónokkrir íbúar virðast deila skoðun Diljár um vona lykt í hverfinu. Margét er ein þeirra. „Ég finn þessa vibbalykt, tengi það reyndar frekar við ungabarnið á heimilinu að keðju-kúka,“ segir Margrét.
Lóa hefur líka orðið vör við vondu lyktina og veltir fyrir sér hvaða lykt þetta geti verið. „Þetta hefur alltaf fundist annað veifið, minna á síðustu árum. Mér var alltaf sagt að þetta væri peningalykt,“ segir Lóa.
Á sama tíma er Ólafur, íbúi hverfisins, afar hrifinn af lyktinni. „I love it!!,“ segir Ólafur.