Hin bráðskemmtilega leikkona Edda Björgvins segir skemmtilega sögu af frænku sinni á samfélagsmiðli:
„Ég spurði fjörgamla frænku mína hvort hún ætlaði að kjósa uppáhalds stjórnmálakonuna okkar, Katrínu, eins og siðast,“ segir Edda og bætir við:
„Frænka rumdi:“
„Nei, því miður, hún er í svo vondum félagsskap – ég ætla að kjósa Sósíalistaflokkinn. Ég treysti þeim til að vera með uppsteyt, kjaft og ólæti á Alþingi!“
Edda spurði fjörgamla frænku sína hvort „hún vildi byltingu?“
„Já helst,“ „sagði þessi 92ja ára gamli töffari.“
Og bætti við:
„En í bili nægir mér að kjósa hrekkjusvín inn á þessa hundleiðinlegu samkomu – og svo er þetta ljóngáfað hugsjónafólk þar að auki!“
„Ég kunni ekki við að minna hana á þá tíð þegar hún kaus XD og hundskammaði mig fyrir ólætin í kvennabaráttunni,“ segir Edda að lokum.