Móðir konu er var gestur í Eigin konum, hlaðvarpi Eddu Falak, vill milljónir í skaðabætur fyrir birtingu hljóðbrots í þættinum.
Staðfestir lögmaður konunnar þetta í samtali við mbl.is.
Kemur fram að Héraðsdómur Reykjavíkur tók málið til meðferðar í gær; var þinghald lokað.
Höfðaði konan mál gegn Eddu vegna birtingar á hljóðbroti í þættinum þar sem greina má samtal hennar og dóttur hennar.
Að mati konunnar brýtur birting hljóðbrotsins gegn friðhelgi einkalífs hennar.
Krefst konan þess að hljóðbrotið verði tekið út úr þættinum.
Áðurnefnd Edda stýrði þættinum Eigin konum frá árinu 2021 til loka ársins 2022, en í síðasta mánuði gekk hún til liðs við Heimildina; mun þar stýra þáttum um samfélagsmál.