Hvítur karlmaður á fimmtugsaldri var í gær dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að hafa hreytt svívirðilegum fúkyrðum í nágranna sinn sem er dökkur á hörund.
Sá ákærði, Edward Cagney Mathews(47), grét þegar dómurinn var kveðinn upp og baðst ítrekað afsökunar á „óviðeigandi orðum sínum og virðingarleysi“. Edward mun afplána fjögur ár af átta bak við lás og slá en játaði hann brot sín fyrir dómi.
„Sérhver dýrlingur á sér fortíð og sérhver syndari á sér framtíð,“ sagði Edward og bætti við að hann ætlaði sér að bæta samfélagið. Þá baðst hann aftur afsökunar á ummælum sínum sem gáfu sterklega í skyn kynþáttafordóma. Auk ummælanna hafði hann hrækt á nágranna sinn en málið hefur vakið töluverða athygli. Þegar réttarhöld hófust safnaðist fólk saman fyrir utan heimili Edwards og mótmæli harðlega framgöngu hans en myndband af honum hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum.