Föstudagur 26. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Frosti hafnar ásökunum Eddu Pétursdóttur: „Gerði ekki neinar leynilegar upptökur af kynlífi okkar“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Ég lagði aldrei hendur á fyrrverandi kærustu mína ,beitti hana ekki andlegu ofbeldi á meðan á sambandi okkar stóð og ég gerði alls ekki neinar leynilegar upptökur af kynlífi okkar eins og haldið er fram,“ skrifar Frosti Logason fjölmiðlamaður á Facebook vegna ásakana Eddu Pétursdóttur, fyrrverandi kærustu sinnar.

Edda kom fram í þætti Eddu Falak, Eigin konur, þar sem hún bar Frosta þungum sökum.

Frosti missti vinnu sína hjá Sýn í framhaldinu og fór á sjóinn. Nú stígur hann fram til að koma skikk á umræðuna. Hann vísar til misskilnings um að hann hefði gengist við ásökunum Eddu Pétursdóttur sem hafi komið til vegna fyrirsagna í fjölmiðlum í mars í fyrra:

„Þetta er að hluta til rétt en staðreyndin er sú að ég hef aldrei gengist við öllum ásökunum hennar eins og margir virðast nú halda.

Í tilkynningu minni sagðist ég taka fulla ábyrgð á hegðun minni, og að ég rengdi ekki að henni hafi liðið illa vegna þess sem ég gerði eftir að sambandi okkar lauk. En þá fór ég í þráhyggju fyrir því að fá viðurkenningu á „brotum hennar“ gagnvart mér og tók að senda ítrekaða tölvupósta til hennar á nokkra mánaða tímabili. Mér þykir það mjög leitt að ég hafi gripið til innihaldslausra hótana í þessum tölvupóstum,“ skrifar Frosti.

Hann segir að fyrrverandi kærasta sín hafi ekki tekið neinum tilraunum hans til sátta:

- Auglýsing -

„Ég hef allar götur síðan að viðtalið við fyrrverandi kærustu mína birtist lagt áherslu á að rétta til hennar sáttarhönd. Það hef ég bæði gert sjálfur persónulega og í gegnum fagaðila. Þess vegna hef ég á sama tíma setið hljóður hjá og gætt mín að fara aldrei út í að greina rétt frá röngu í málflutningi hennar opinberlega.

Mér hefur heldur aldrei fundist við hæfi að hengja upp okkar skítugasta þvott frammi fyrir allra augum því hann á ekkert erindi til almennings. Ég ber enn þá von í brjósti að fyrrverandi kærasta mín muni einhvern tímann vilja ljúka þessu máli með mér á þann hátt sem báðir aðilar geta sætt sig við,“ skrifar Frosti.

Pistill Frosta Logasonar í heild sinni:

- Auglýsing -

Kæru vinir
Undanfarið hef ég orðið var við misskilning hjá fólki sem þekkir ekki til mála.

Hann er til kominn vegna fyrirsagna fjölmiðla í kjölfar yfirlýsingar minnar í mars í fyrra.

Þessar fyrirsagnir gáfu í skyn að mistök mín hafi verið meiri en raun ber vitni meðal annars vegna þess að yfirlýsing mín var ekki nákvæmari en svo að það mátti misskilja hana.

Þar sögðu einhverjir að Frosti Logason hefði gengist við ásökunum Eddu Pétursdóttur.

Þetta er að hluta til rétt en staðreyndin er sú að ég hef aldrei gengist við öllum ásökunum hennar eins og margir virðast nú halda.

Í tilkynningu minni sagðist ég taka fulla ábyrgð á hegðun minni, og að ég rengdi ekki að henni hafi liðið illa vegna þess sem ég gerði eftir að sambandi okkar lauk.

En þá fór ég í þráhyggju fyrir því að fá viðurkenningu á „brotum hennar“ gagnvart mér og tók að senda ítrekaða tölvupósta til hennar á nokkra mánaða tímabili.

Mér þykir það mjög leitt að ég hafi gripið til innihaldslausra hótana í þessum tölvupóstum. Það er ótrúlegt hvað höfnunarkenndin getur beyglað vandræðapésa af þeirri gerð sem ég var á þessum tíma.

Ég legg áherslu á að mér og mínum finnst ég vera á miklu betri stað núna en það er endanlega annarra að dæma um það.

En svo að það sé ítrekað hér þá hef ég sem sagt viðurkennt og beðist afsökunar á að hafa sent óviðeigandi tölvupósta eftir að sambandi okkar lauk. Annað gerði ég ekki og ég hef ekki gengist við neinu öðru.

Ég lagði aldrei hendur á fyrrverandi kærustu mína, beitti hana ekki andlegu ofbeldi á meðan á sambandi okkar stóð og ég gerði alls ekki neinar leynilegar upptökur af kynlífi okkar eins og haldið er fram.

Ég hef allar götur síðan að viðtalið við fyrrverandi kærustu mína birtist lagt áherslu á að rétta til hennar sáttarhönd.

Það hef ég bæði gert sjálfur persónulega og í gegnum fagaðila.

Þess vegna hef ég á sama tíma setið hljóður hjá og gætt mín að fara aldrei út í að greina rétt frá röngu í málflutningi hennar opinberlega. Mér hefur heldur aldrei fundist við hæfi að hengja upp okkar skítugasta þvott frammi fyrir allra augum því hann á ekkert erindi til almennings.

Ég ber enn þá von í brjósti að fyrrverandi kærasta mín muni einhvern tímann vilja ljúka þessu máli með mér á þann hátt sem báðir aðilar geta sætt sig við.

Ég geri mér hins vegar grein fyrir því að það er hennar réttur að gera það ekki þótt það valdi mér og mínum sársauka. Sáttarvilji minn er hins vegar einlægur.

Frosti Logason.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -