Laugardagur 20. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Gísli er ekki glaður: „Ljóta helvítis umhverfis…. núna er kókómjólk kominn með bréfrör“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Gísli nokkur er ekki hrifinn af breytingunum sem gerðar hafa verið á Kókómjólk. Hann tjáir sig um það inn á Facebook hópnum Matartips.

Ljóta helvítis umhverfis…. núna er kókómjólk kominn með bréfrör í staðinn fyrir plaströr. Finnst bragðið skila sér illa í bréfrörinu auk þess að þetta rör mýkist upp. Fá plastið aftur!!“ segir Gísli og fá ummæli hans töluverðan meðbyr.

Fólk hefur tekið mjög misjafnlega í breytingar á umbúðum matvæla í tengslum við umhverfissjónarmið og reglur. Mannlíf fjallaði einmitt um eitt slíkt máli í gær.

Fólk hefur skoðanir á málinu

Undir færslu Gísla eru komin hvorki meira né minna en 231 umsögn svo það er ljóst að margir hafa skoðun á breytingunum. Mjög margir eru sammála honum svo eru enn aðrir að ráðleggja honum hvernig hann getur leyst vandamálið. Svo eru það þeir sem hafa umhverfisverndarsjónarmið eins og Kristófer sem segir: „Hvernig heldurðu að jörðinni finnist bragðið af öllum plast rörunum sem þú hefur notað yfir ævina? …. því þau eru Öll enn þá til ……. bara hanna þetta rör betur eða helltu þessu í glas ! Eða finndu bara fyrsta rörið sem þú notaðir í 1. bekk og notaðu það aftur! Kær kveðja: H2o. Svandís segir þetta: „Ég ætla að stelast í þessa umræðu og spyr hvort einhver hafi séð svona lítil stálrör einhvers staðar? Best að venja sig bara á að vera með endurnýtanleg rör og skeiðar í veskinu/ bílnum (því það er EKKI hægt að borða ís með tréskeið *hrollur*)“.

Öll ummælin má lesa hér.

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -