Fimmtudagur 28. mars, 2024
-3.2 C
Reykjavik

Fljúgðu fyrir hálfvirði

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Flugfélagið Ernir býður farþegum sínum flug á hálfvirði í tilefni af stórafmæli. Félagið var stofnað fyrior hálfri öld. Af því tilefni gefur félagið fimmtíu prósenta afslátt af öllum fargjöldum, bóki viðskiptavinir á netinu.  

Tilboðið gildir út ágústmánuð og eru áfangastaðirnir eftirtaldir: Vestmannaeyjar, Höfn í Hornafirði, Húsavík, Bíldudalur og Gjögur.  

Margt gert á fimmtíu árum

Flugfélagið Ernir á sér áhugaverða sögu og skal hér stiklað á stóru. Það var stofnað á Ísafirði árið 1970 af Herði Guðmundssyni.  Á vef flugfélagsins segir svo frá: 

Félagið varð fljótlega mikilvægt í samgöngu- og öryggismálum Vestfirðinga sem lengi bjuggu við erfiðar vegasamgöngur. Skömmu eftir að Flugfélagið Ernir hóf starfsemi sína á Vestfjörðum var komið á fót póstflugi milli allra helstu bæja og þéttbýlisstaða í fjórðungnum. Auk póstáætlunarflugsins stundaði félagið sjúkraflug og stundaði það af krafti um langt árabil, einkum á Vestfjörðum, Norðvesturlandi og á norðanverðu Snæfellsnesi. 

Hér eru nokkur mikilvæg ártöl í sögu félagsins en söguna í lengri útgáfu má lesa á vefsíðu þess: 

- Auglýsing -

1970 Flugfélagið Ernir stofnað á Ísafirði 

1988 Áætlunarflug hefst á milli Reykjavíkur og Ísafjarðar 

1989 Flug fyrir Rauða Krossinn í Kenía og Suður-Súdan 

- Auglýsing -

1991 Flugfélagið flýgur með birgðir og hjálpargögn í Mósambík 

1994 Birgðaflug í Angóla á vegum Rauða Krossins 

1997 Þá flugu Ernir, bók um flugfélagið gefin út 

2003 Skrifstofur félagsins færðar frá Ísafirði til Reykjavíkur 

2007 Ernir hefur áætlunarflug til Bíldudals, Gjögurs, Sauðárkróks og Hafnar í Hornafirði 

2010 Flugfélagið Ernir fagnar 40 ára afmæli 

2012 Áætlunarflug hefst á milli Reykjavíkur og Húsavikur 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -