Föstudagur 26. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Aðgerðin til bjargar Guðmundi Felix: 50 læknar voru 15 klukkustundir að tengja hendurnar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
„Við gátum ekki haldist í hendur eins og núna, og þetta er indælt. Þetta er gjöf, umfram væntingar okkar,“ segir Sylvia við franska sjónvarpið.
Franska ríkissjónvarpið hitti Guðmund Felix og Sylwiu Grétarsson eiginkonu hans í Lyon fyrir jól á síðasta ári og tjáði Guðmundur að endurhæfingin gengi hraðar en hann þorði að vona og hann stefndi á að geta borðað súpu um jólin.

Guðmundur Felix Grétarsson, rafeindavirki slasaðist alvarlega við störf sín árið 1998 og missti m.a. báða handleggi. Hann vakti mikla athygli í kjölfar slyssins og setti meðal annars stefnuna á að fá grædda á sig nýja handleggi. Í janúar árið 2021 fór aðgerðin fram í Lyon í Frakklandi og þykir hún marka tímamót í læknavísindum.

Guðmundur Felix fæddist 1972 í Reykjavík.  Hann lauk námi í rafeindavirkjun árið 1997 og hóf í kjölfarið störf hjá Rafveitu Reykjavíkur. Kona Guðmundar Felix heitir Sylwia Gretarsson, en þau kynntust í Lyon og eiga tvær dætur úr fyrra sambandi.

Nýjar hendur – innan seilingar

Guðmundur Felix starfaði sem rafeindavirki hjá Rafveitu Reykjavíkur og vann að viðgerð á háspennulínu við Hafravatn í janúar árið 1998. Hann virðist hafa farið upp í rangan staur og snert línu sem straumur hafði ekki verið tekinn af. Í kjölfarið fellur hann átta metra niður úr staurnum. Við slysið hryggbrotnaði Guðmundur Felix á þremur stöðum, brákast í hálsliðum, rifbein losnuðu frá hryggjarsúlunni og það kviknaði í handleggjum hans.

Guðmundur Felix komst til meðvitundar tæpum þremur mánuðum síðar, en hann lá á sjúkrahúsi í 7-8 mánuði eftir slysið og fór þaðan í 14 mánaða endurhæfingu á Reykjalund. Við tóku erfið ár hjá Guðmundi og m.a. þurfti hann tvisvar sinnum að fara í lifrarígræðslu árið 2002.

Árið 2018 kom út heimildarmyndin Nýjar hendur – innan seilingar um sögu Guðmundar Felix.

- Auglýsing -

50 læknar og 15 klukkustundir

Guðmundur Felix fluttist til Lyon í Frakklandi sumarið 2013 og stóðu vonir til þess að þar yrði skömmu síðar gerð á honum handleggjaágræðsla. Ferlið var hins vegar langt og strangt og mun lengra en búist hafði verið við í upphafi.

Sjö og hálfu ári eftir flutning til Frakklands og tuttugu og tveimur árum eftir slysið, gekkst Guðmundur Felix undir aðgerðina í Lyon í Frakklandi á þessum degi, þann 13. janúar árið 2021 þar sem framkvæmd var flókin handleggja- og axlarágræðsla.

Um 50 læknar frá fjórum sjúkrahúsum tóku þátt í aðgerðinni en hún tók um 15 klukkustundir. Aðgerðin þótti takast vel og nokkrum dögum síðar sagðist Guðmundur ekki lengur vera handlangari nú væri hann orðinn handhafi. Við tekur þó langt bataferli og endurhæfing en ekki er hægt að meta árangur aðgerðarinnar að fullu fyrr en að þremur árum liðnum.

- Auglýsing -

Guðmundur var valinn maður ársins 2021 og heldur áfram á sínu stórmerkilega ferðalagi.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -