Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Alma ákvað 22 ára að eignast barn ein:„Farin að þrá þetta svo mikið að ég var ekki tilbúin að bíða”

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Læknaneminn Alma Glóð Kristbergsdóttir ákvað ung að eignast barn ein:

„Ég ákvað þegar ég var 22 ára að mig langaði að fara þessa leið; fer svo í tæknisæðingu þegar ég er 23 ára; og á hann svo tveimur dögum fyrir 24 ára afmælið mitt.” segir Alma og bætir við:

„Ég held að þetta sé svona frekar óalgeng leið að gera þetta svona ung en fyrir mig þá var þetta það rétta fyrir mig. Ég fann bara að þetta var það sem mig vantaði í líf mitt og ég ákvað að vera ekkert að bíða neitt lengur eftir því að uppfylla þennan draum.”

Alma er yngsta móðirin í félagi Einstakra mæðra en fjallað verður um félagið í þættinum Landanum á RÚV:

„Ég hafði alltaf séð fyrir mér að ég myndi eignast barn með maka en svo einhvern veginn þá var ég farin að þrá þetta svo mikið að ég var ekki tilbúin að bíða. Ég vildi heldur ekki finna einhvern og pressa alltof snemma á barneignir eða eignast barn með einhverjum sem ég vildi ekki eiga barn með af því ég var farin að þrá þetta svo mikið. Þannig ég ákvað að þetta væri kannski skynsamlegast fyrir mig. Að ég myndi bara eignast barn ein og ef ég kynnist einhverjum þá bara gerist það og þá bara fylgir mér barn.“

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -