Laugardagur 27. júlí, 2024
10.8 C
Reykjavik

Áskorun djákna og presta vegna fjöldamorðsins á Gaza: „Vopnahlé er eina leiðin“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hópur djákna og presta á Íslandi senda frá sér áskorun vegna fjöldamorðsins á Gaza.

Djáknar og prestar sendu fjölmiðlum í gær áskorun sína vegna fjöldamorðsins á Gaza, sem nú á sér stað frammi fyrir augunum á heiminum. Í áskoruninni fordæmir hópurinn fjöldamorð Ísraelsríkis á saklausum borgurum á Gaza. Skora þau á stjórnvöld á Íslandi að fordæma einnig árásir Ísraels á Gaza og beita sér fyrir tafarlausu vopnahléi. Þá fordæmir hópurinn á sama tíma hryðjuverkaárás Hamas í Ísrael þann 7. október.

Hér má sjá áskorunina í heild, sem og lista yfir þá djákna og presta sem skrifa undir plaggið.

Áskorun djákna og presta vegna fjöldamorðsins á Gaza. Við undirrituð, djáknar og prestar, fordæmum fjöldamorð Ísraelsríkis á saklausum borgurum á Gaza svæðinu. Við skorum á stjórnvöld á Íslandi að fordæma árásir Ísraels á Gaza og beita sér fyrir tafarlausu vopnahléi.

Um leið og við fordæmum hryðjuverkaárás Hamas í Ísrael þann 7. október, tökum við undir með ríkjum og alþjóðasamtökum að vopnahlé er eina leiðin til að stöðva það gríðarlega mannfall sem orðið hefur þar sem hátt í 30 þúsund manns hafa látið lífið, þar af þriðjungur börn.

Einnig skorum við á stjórnvöld að gera Palestínumönnum á Íslandi, sem eiga rétt á fjölskyldusameiningu, kleift að fá fjölskyldur sínar til landsins.

- Auglýsing -

Anna Eiríksdóttir

Anna Elísabet Gísladóttir

Arna Grétarsdóttir

- Auglýsing -

Arna Ýrr Sigurðardóttir

Arnaldur Máni Finnsson

Arnór Bjarki Blomsterberg

Árni Þór Þórsson

Ása Björk Ólafsdóttir

Ása Laufey Sæmundsdóttir

Bára Friðriksdóttir

Bjarni Karlsson

Bolli Pétur Bollason

Bragi J. Ingibergsson

Bryndís Böðvarsdóttir

Edda Hlíf Hlífarsdóttir

Elínborg Sturludóttir

Elína Hrund Kristjánsdóttir

Eva Björk Valdimarsdóttir

Dagur Fannar Magnússon

Daníel Ágúst Gautason

Davíð Þór Jónsson

Gunnar Stígur Reynisson

Guðbjörg Jóhannesdóttir

Guðmundur Örn Jónsson

Guðmundur Karl Brynjarsson

Guðni Már Harðarson

Guðný Hallgrímsdóttir

Guðrún Karls Helgudóttir

Grétar Halldór Gunnarsson

Halla Rut Stefánsdóttir

Hafdís Davíðsdóttir

Hans Guðberg Alfreðsson

Helga Bragadóttir

Helga Kolbeinsdóttir

Heiðrún Helga Bjarnadóttir Back

Hildur Björk Hörpudóttir

Hildur Eir Bolladóttir

Hjalti Jón Sverrisson

Inga Harðardóttir

Ingólfur Hartvigsson

Irma Sjöfn Óskarsdóttir

Jóhanna Gísladóttir

Jóhanna Magnúsdóttir

Jón Ásgeir Sigurvinsson

Jóna Hrönn Bolladóttir

Jóna Kristín Þorvaldsdóttir

Kristín Kristjánsdóttir

Laufey Brá Jónsdóttir

Magnea Sverrisdóttir

María Guðrúnar Ágústsdóttir

María Rut Baldursdóttir

Margrét Lilja Vilmundardóttir

Matthildur Bjarnadóttir

Ninna Sif Svavarsdóttir

Sigurður Arnarson

Sigurður Grétar Helgason

Sigurður Grétar Sigurðsson

Sigurður Ægisson

Sigrún Margrétar Óskarsdóttir

Sigríður Kristín Helgadóttir

Sigríður Rún Tryggvadóttir

Sigríður Munda Jónsdóttir

Sindri Geir Óskarsson

Skúli S. Ólafsson

Stefán Már Gunnlaugsson

Solveig Lára Guðmundsdóttir

Sólveig Halla Kristjánsdóttir

Sunna Dóra Möller

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir

Svavar Alfreð Jónsson

Toshiki Toma

Oddur Bjarni Þorkelsson

Ólöf Margrét Snorradóttir

Óskar Hafsteinn Óskarsson

Viðar Stefánsson

Vilborg Ólöf Sigurðardóttir

Þorgeir Arason

Þorvaldur Víðisson

Þór Hauksson

Þóra Björg Sigurðardóttir

Þuríður Björg W. Árnadóttir

Örnólfur Jóhannes Ólafsson

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -