Edda Falak, hlaðvarpstjórnandi er hugsi yfir því hvernig umræðan hefur verið um Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, í borgarstjórn á Twitter-síðu sinni.
Vísir fjallaði um fjarveru Hildar á borgarstjórnarfundi en hún hefur ekki mætt á fund síðan um miðjan febrúar.
Þetta vakti athygli margra og stigu nokkrir af mótherjum Hildar fram og gagnrýndu hana. Alexandra Briem, forseti borgarstjórnar og borgarfulltrúi Pírata, sagði til dæmis:
„Spurning hvort Hildur haldi að hún sé meira í kosningabaráttu en við hin. Það virðist ekkert vera að vefjast fyrir öðrum fulltrúum að mæta á svona flesta fundina sína, bæði í meirihluta og minnihluta.“
Þá ýjaði Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, oddviti Pírata í Kópavogi, að því að Hildur væri að brjóta sveitarstjórnarlög um réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna.
Edda Falak kemur Hildi til varnar og segir:
„Þetta með að Hildur Björnsdóttir hafi ekki mætt á fundi lúkkar bara eins og eitthvað flokkpólitískt skítkast tbh…“
Hildi til varnar hefur mæting hennar á borgarstjórnarfundi á kjörtímabilinu verið ágæti, heilt yfir. DV greindi frá því í gær að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri væri með bestu mætinguna en Hildur væri á pari við aðra oddvita í borgarstjórn.
Þetta með að Hildur Björnsdóttir hafi ekki mætt á fundi lúkkar bara eins og eitthvað flokkpólitískt skítkast tbh…
— Edda Falak (@eddafalak) May 4, 2022