Miðvikudagur 8. maí, 2024
4.8 C
Reykjavik

„Fjarstæðukennt að halda því fram að Krónan hafi fórnað hagsmunum viðskiptavina sinna“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Krónan áréttar að í nóvember á síðasta ári var samningi við Wok On sagt upp með samningsbundnum uppsagnarfresti. Var þetta gert í kjölfar fregna af matvælalagernum í Sóltúni. Á þessum tímapunkti lá ekki fyrir það sem komið hefur fram í fjölmiðlum síðustu daga um rekstur þessara staða; rökstuddur grunur um mansal og annað glæpsamlegt athæfi. Þegar það lá fyrir var stöðunum lokað, samningi rift og merkingar teknar niður,“ ritar Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, í grein á vísi.is. 

Ástæðan sem liggur að baki skrifa framkvæmdastjórans eru ummæli Ólafs Haukssonar, almannatengils og hluthafa í Festi, móðurfélagi Krónunnar. Vill Ólafur meina að þrátt fyrir að forsvarsmenn Krónunnar hafi vitað  um tengingu Wok On og matvælalagersins að Sóltúni hafi verslunarkveðjan haldið áfram að selja viðskiptavinum sínum mat frá fyrirtækinu.

Guðrún upplýsir að Wok On hafi verið rekið af sjálfstæðum rekstraraðilum og á eigin starfsleyfi. Þess auki hafi komið yfirlýsing frá rekstraraðila að eigandi lagersins að Sóltúni kæmi ekki að rekstri Wok On staðanna, heldur væru birgjar þeirra viðurkenndir aðilar.

„Það sama var gert á fundum með Krónunni, þar sem stjórnendur Krónunnar voru fullvissaðir um að engin matvæli frá umræddum matvælalager hefðu komið inn á stað Wok On í Krónunni. Að auki staðfestu þáverandi forsvarsmenn Wok On að staðurinn uppfyllti öll skilyrði um heilnæmi og meðferð matvæla en það kemur skýrt fram í samningum Krónunnar að heilbrigðisreglugerðum skuli fylgt í hvívetna af hálfu rekstraraðila. Krónan treysti því að starfsleyfi Wok On yrði afturkallað ef starfsemin uppfyllti ekki skilyrði Heilbrigðiseftirlitsins. Einnig er vert að taka fram að Krónan hefur ítrekað fengið hæstu einkunn frá Heilbrigðiseftirlitinu og alltaf haft það að markmiði að viðhalda hæstu stöðlum í þeim efnum.“

Gripið hefur verið til þeirra samningsbundnu lagalegu úrræða af hendi Krónunnar, með velferð viðskiptavina að leiðarljósi útskýrir Guðrún og bætir við:

„Það er því fjarstæðukennt að halda því fram að Krónan hafi fórnað hagsmunum viðskiptavina sinna til að forða Krónunni frá hugsanlegri skaðabótaskyldu.“

- Auglýsing -

Að endingu skrifar Guðrún:

„Við sjáum það núna í ljósi þessa hörmulega máls að Krónan þarf að gera ítarlegri kröfur á þá sem reka sjálfstæð veitingarými innan verslana varðandi upplýsingagjöf úr niðurstöðum Heilbrigðiseftirlitsins. Krónan mun gera þessar niðurstöður sýnilegar viðskiptavinum staðanna þannig að öllum verði ljóst áður en þeir versla á viðkomandi stöðum hvaða einkunn þeir fá frá Heilbrigðiseftirlitinu. Krónan fagnar auknu gagnsæi og hvetur aðrar matvöruverslanir, mathallir og veitingastaði til að gera slíkt hið sama.

Hagsmunir viðskiptavina Krónunnar hafa verið og verða ávallt í fyrirrúmi.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -