Fimmtudagur 25. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Fjórar tannlausar kengúrur fundust í Hafnarfirði: „Þær eru þarna til bráðabirgða í nokkra daga.“ 

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Kengúrurnar eru frekar smáar en það furðulega er, að dýrin fjögur eru tannlaus og lítur helst út fyrir að tennurnar hafi verið dregnar úr þeim.“ sagði í frétt Tímans föstudaginn, 23. desember 1988 undir fyrirsögninni: Kengúrur híma í kulda og trekk.  

Blaðamaður og ljósmyndari Tímans könnuðu staðinn eftir að ábending barst um að einhver dýr væru enn að finna á svæði Sædýrasafnsins en safnið hafði verið úrskurðað gjaldþrota og lokað þremur árum áður. 

„Eftir nokkra stund kom í ljós að upplýsingarnar eru réttar, á staðnum eru kengúrur. Leyfi fékkst til að líta á dýrin, en ekki mátti mynda þau eða birta frétt í blaðinu. Tíminn hundsar þetta bann vegna þess að þetta er dæmi um ómannúðlega meðferð á dýrum sem eiga alls ekki að lifa við jafn slæmar kringumstæður og þarna eru, sem eru eins ólíkar náttúrulegum lífsaðstæðum þeirra í Ástralíu og hugsast getur. Starfsmaðurinn sagði að til hefði staðið að lóga dýrunum í byrjun desember en það hefði dregist. – Það er kannski engin furða því með réttu hefði átt að lóga dýrynum fyrir þremur árum.“

Aðstæður dýranna voru vægast sagt bæði bágbornar og forkastanlegar út frá lýsingu blaðamannsins. „Kofinn er lítill og sóðalegur, stærðin er u.þ.b. 2×5 metrar. Ekkert er inni í kofanum nema bert steingólfið og körfur með mygluðu brauði, salati og ávöxtum. Að vísu hefur veríð komið fyrir ofni til að veit einhvern yl. Þarna verða dýrin að híma því út geta þau ekki farið vegna kuldans. Eftir að Sædýrasafnið varð gjaldþrota var öllum öðrum dýrum lógað, en hið furðulega er að allan þennan tíma hefur lífinu verið haldið í kengúrunum fjórum, sem eru á bilinu fjögurra til fimm ára gamlar.“ 

Kengúrurnar sem fundust Mynd/skjáskot timarit.is – Tíminn

Fræðslustjóra fátt um svör

Fjölmiðilinn, Tíminn setti sig í samband við þáverandi fræðslustjóra safnsins, Helga Jónsson. Var hann spurður spurninga um aðstæður og aðbúnað dýranna.  „Þær eru þarna til bráðabirgða í nokkra daga,“ svaraði hann.

- Auglýsing -

En hafa dýrin ekki verið þarna frá því að safnið varð gjaldþrota? 

„Þær eru búnar að vera þarna alla sína tíð.“ 

– Af hverju hefur dregist svona lengi að lóga þeim eða koma þeim fyrir við mannúðlegri aðstæður? 

- Auglýsing -

„Ég get ekki svarað því. Þeir sem vinna þarna hafa haldið mikið upp á þessi dýr og hugsað um þau.“ 

– Eru það þá starfsmenn sem hafa viljað halda í dýrin? 

„Ég sé ekki forsendur fyrir því að fara að ræða þetta.“ 

– En hefur ekki verið talað við ykkur af fólki frá Dýraverndunarfélaginu? 

„Nei, það hefur ekki verið neitt að kengúrunum, þær eru í upphituðu húsi og vel um þær hirt.“ 

– Ég sá hvernig er búið að þeim, þær eru fjórar í Iitlum kofa. Maðurinn sem ég hitti sagði að þeim yrði lógað mjög fljótlega. Veistu hvenær það verður gert? 

„Ég upplýsi það bara ekkert, ég vil ekki ræða þetta frekar.“ 

– Má ég spyrja hvort þið hafið reynt að koma þeim úr landi í dýragarða? 

„Nei, við höfum ekki reynt það.“ 

 

Tíminn tilkynnti málið

Fjölmiðillinn tilkynnti Sambandi dýraverndunarfélaga Íslands um kengúrurnar sem tók málið fyrir. Undrun formanns sambandsins leyndi sér ekki og sagði sambandið ekki hafa vitað betur en að öllum dýrum safnsins hafi verið lógað.

„Hvað ertu að segja!“ 

Var það fyrsta sem Jórunn Sörensen formaður Sambands dýraverndunarfélaga Íslands sagði þegar Tíminn tilkynnti henni um kengúrurnar. „Við héldum að það væri búið að lóga öllum dýrum sem voru í safninu og vorum ánægð með það. Sædýrasafnið var alltaf til vandræða og fjöldi mála sem kom upp vegna slæmrar meðferðar á dýrunum. Varðandi þetta tiltekna mál sagði Jórunn: „Þetta kemur mér mjög á óvart eins og ég sagði áðan því okkur hafði verið Tímamynd: Gunnar sagt að þarna væri ekkert kvikt lengur. Ég á heldur alls ekki von á því að það sé vel um dýrin hugsaö því áralóng vandræði voru meo safnið á meðan það var og hét. Nú eru engir áhorfendur til staðar til að veita aðhald, þannig að ég á ekki von á góðu.“ Dýraverndunarfélagið mun taka þetta mál fyrir og sjá til þess að dýrin losni undan þessari slæmu meðferð.

 

Sædýrasafnið í Hafnarfirði

Jón Kr. Gunnarsson skip- og ritstjóri stofnaði Sædýrasafnið árið 1969 ásamt Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði. Safnið var vel sótt á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. Starfsemi safnsins fékk á sig harða gagnrýni meðal annars þar sem starfsemi þess var fjármögnuð með föngun og sölu háhyrninga til sædýrasafna og dýragarða víðsvegur um heiminn.

Sædýrasafnið var staðsett neðarlega í Holtunum í Hafnarfirði. Þar gátu gestir séð hvali, ísbirni, kengúrur, seli, ljón, apa og íslensk húsdýr. Safninu var lokað sökum rekstarerfiðleika árið 1987.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -