Fimmtudagur 18. apríl, 2024
1.1 C
Reykjavik

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þann 31. janúar 1951 lagði Dagota flugvél Flugfélags Íslands að nafni Glitfaxi af stað í áætlunarflug frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur. Um borð var þriggja manna áhöfn og sautján farþegar. Veðrið var vafasamt en hríðabylur var úti og ekki hafði verið flogið til eða frá Eyjum í þrjá daga vegna veðursins. Rétt fyrir fimm var Glitfaxi staddur yfir stefnuvita Reykjavíkurflugvallar á Álftanesi en flugstjóranum, Ólafi Jóhannssyni var gefin heimild til að lækka flug og stefna í átt að flugbrautinn í snjónflugi. Flaug flugstjórinn vélinni niður en þá var flugbrautin hvergi sjáanleg. Stýrði Ólafur því vélinni aftur upp að ráði flugturnsins og flaug út á Faxaflóa. Var honum þá tilkynnt af flugturninum að nú væri veðrið orðið skárra og honum ráðlagt að reyna annað aðflug. Lækkaði Ólafur því flugið og setti flugvélina í stefnu en skyndilega rofnaði allt samband við vélina. Glitfaxi var horfinn í sæinn.

Um er að ræða eitt dularfyllsta flugslys Íslandssögunnar en flak flugvélarinnar hefur aldrei fundist.

Tíminn fjallaði um flugslysið á sínum tíma:

Glitfaxi hefir farizt milli Álftaness og Keilisness

Olíubrák á sjónum út af Hraunsnesi, björgunarbelti á floti nokkru utar, tveir flekar úr hreyfli flugvélarinnar út af Keilisnesi

Það má nú telja víst, að flugvélin Glitfaxi hafi farið í sjóinn einhvers staðar á svæðinu milli Álftaness og Keilisness, og allir, sem í henni voru farizt þar. Fannst á þessum slóðum brak úr gólfi flugvélar og eitt björgunarbelti, og brák á sjónum út af Hraunsnesi. Virðist allt benda til þess, að slysið hafi borið mjög skjótt að og fólkið drukknað þegar í stað.

Reköld finnast

Jóhannes flugstjóri Snorrason kom fyrstur manna auga á brakið um þrjúleytið í gær, og tilkynnti þegar, að hann sæi á tveim stöðum eitthvað í sjónum, sem gæti verið fleki úr flugvélargólfi. Risi það á rönd upp úr sjónum, og sæi í nýlegt brotsár. Voru flök þessi út af Keilisnesi i stefnu frá Akrafjalli á Keflavík. Sendi Jóhannes svohljóðandi skeyti: „Hef fundið brak á sjónum. Það líkist krossviðarfleka, brotið á hliðum og upp úr því stendur eitthvað. Gæti verið hluti af gólfi úr flugvél.“ Varðskipið Ægir var þá statt í sex mílna fjarlægð, og kom það nú á vettvang. Kastaði björgunarflugvél frá Keflavíkurflugvelli út fljótandi blysi til þess að merkja staðinn, þar sem flökin voru. Fann Ægir brátt reköldin og auk þess eitt björgunarbelti. Kom hann með þetta til Reykjavíkur í gærkvöldi.



Brakið tvímælalaust úr Glitfaxa

Þegar er Ægír var kominn að landi, var brakið, sem fundizt hafði, tekið til rannsóknar og varð niðurstaðan sú, að brakið væri tvímælalaust úr Glitfaxa. Var um að ræða tvo gólffleka, um tveggja metra langa eða rösklega það, og var annar mun mjórri en hinn. Er talið, að annar hafi verið hægra megin úr gólfi flugvélarinnar, en hinn vinstra megin. Stærri flekinn var flagnaður og brotinn í annan endann og skein þar í hvítan balsavið. Við fleka þennan voru einnig brot af stólafestingum, og hluti af áklæði af einum stólnum. Björgunarbeltið, sem fannst, var með órofnu innsigli, og hafði því sýnilega ekki verið notað. Hluti þessa alla töldu flugvirkjar og flugmenn sig þekkja, að væru úr Glitfaxa, enda voru brotsár á viði og málmi alveg ný, og ekki um brak úr annarri flugvél að gera á þessum slóðum. Umfangsmikil leit. Þegar brakið úr flugvélinni hafði fundizt, og sýnt þótti, að það væri úr Glitfaxa, voru leitarflokkar allir á landi kvaddir heim, og skip og flugvélar beðin að hætta leit. — Höfðu tólf flugvélar tekið þátt í Ieitinni, en auk þess mörg skip og bátar og fjöldi fóiks á landi allt umhverfis Faxaflóa. Var leitað allt frá sjávarmáli upp til fjalla.

Fólkið, sem fórst

Eins og skýrt var frá í gær voru margir Vestmannaeyingar meðal beirra, sem fórust með Glitfaxa. Páll Jónsson skipstjóri var að koma hingað til þess að taka við bátnum Faxaborg, og var í för með honum sumt af mönnunum, sem átti að vera á bátnum. — Kona sú, sem í blaðinu í gær var samkvæmt farþegalistanum sögð heita Marta Hjartardóttir, hét María Hjartarson, og barn hennar var kornungt sveinbarn, aðeins fimm mánaða. Bræðurnir Magnús Guðmundsson úr Reykjavík (ranglega sagður úr Keflavík í gær) og Guðmann Guðmundsson í Keflavík voru að koma frá arfaskiptum, sem farið höfðu fram eftir látinn bróður þeirra í Eyjum. Loks skal það leiðrétt, að Guðmundur bóndi í Arnarholti var ranglega nefndur Guðbjörnsson i gær. Hann var Guðbjarnason. Flugstjóri á Glitfaxa, Ólafur Jóhannsson, var sonur Jóhanns Þ. Jósefssonar alþingismanns.

Minnist afa síns

- Auglýsing -

Sigfús Guttormsson frá Krossi í Fellasveit á Austurlandi skrifaði fallega færslu á Facebook á dögunum. Í færslunni segir hann sögu afa síns og alnafna, Sigfús Guttormsson á Krossi en hann fórst með Glitfaxa þennan afdrífaríka dag fyrir 72 árum. Gaf hann Mannlífi góðfúslegt leyfi til að birta færsluna

„Í janúar 1951 fór afi á Krossi, Sigfús Guttormsson, til Vestmannaeyja. Hann hafði kennt sér meins og fór að hitta Einar bróður sinn sem var lengi læknir í eyjum til að ráðfæra sig við hann. Reyndar bjó Guðlaugur bróðir þeirra líka í Vestmannaeyjum

Miðvikudaginn 31. janúar vildi afa fara með flugi frá eyjum til Reykjavíkur. Hann vildi fara að koma sér áleiðis heim þar sem amma, Sólrún Eiríksdóttir, var ein heima á Krossi með sjö af börnum þeirra. Oddur, Guðný Sólveig, Guttormur, Sveinn Eiríkur, Baldur, Jón og Oddbjörg voru heima. Páll elsti sonurinn var þennan vetur í skóla á Eiðum. Þórey ólst upp á Reyðarfirði. Níu börn afa og ömmu komust til fullorðinsára.

Hjónin á Krossi

Veður var ekki sem best og það mokaði niður snjó í logni í Vestmannaeyjum. Að afi skyldi endilega vilja fara með flugi þennan dag í þessu veðri lagðist illa í Margréti konu Einars bróður afa. Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf og bað hann að um að fresta för sinni til morguns. Afi hélt sínu striki með þá ætlun sína að komast sem fyrst heim til fjölskyldu sinnar sem beið hans.

- Auglýsing -

Seinni partinn tók flugvélin Glitfaxi á loft frá flugvellinum í Vestmannaeyjum. Áfangastaður var Reykjavíkurflugvöllur. Flugvélin kom til aðflugs en varð frá að hverfa vegna þess að dimmt él gekk yfir borgina. Flugmennirnir fengu skilaboð frá flugturni um að fljúga hring og bíða þess að birti til. Í þessu flugi lenti Glitfaxi í hafinu og fórst. Önnur flugvél fór, á svipuðum tíma þetta síðdegi, sömu flugleið frá eyjum og til Reykjavíkur. Hún lenti heilu og höldnu í Reykjavík.

Margar spurningar og kenningar vöknuðu í kjölfarið á slysinu og hafa lifað með fjölskyldum allra þeirra sem fórust. Svör hafa ekki legið á lausu. Mörgum sem tengjast harmleiknum hefur fundist að hægt væri að varpa ljósi á eitt og annað. Opinberlega er staðsetning flaks Glitfaxa óþekkt. Með Glitfaxa fórust 20 manns.

Frásögnin hér að ofan kemur til mín frá pabba, systkinum hans, tveimur börnum Einars læknis og fleirum. Þetta er okkar saga. Fjölskyldur allra hinna sem fórust eiga sér sínar sögur.

Í dag eru 72 ár liðin frá því að afi fórst. Í kvöld logar á kerti á ferðakofforti afa hér í stofunni.
Hvíl í friði!“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -