- Auglýsing -
Háskólanemar mótmæla nú við Alþingishúsið á Austurvelli.
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2024/03/image2-8-768x1024.jpeg)
Ljósmynd: Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
Nemendur úr Háskóla Íslands, Listaháskóla Íslands og öðrum háskólum gengu úr tíma eftir hádegi í dag og gengu niður á Austurvöll, þar sem haldinn var samstöðufundur kl. 14:00 og standa nú yfir mótmæli við Alþingishúsið.
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2024/03/image5-1024x768.jpeg)
Ljósmynd: Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
Nemendurnir eru að mótmæla aðgerðarleysi ríkisstjórnar Íslands vegna þjóðarmorðsins í Palestínu.