Laugardagur 27. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Hilma fékk símtal sem ekkert foreldri vill fá: „Ég var búin að gráta stans­laust“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Ég og bróðir minn vor­um á róló, akkúrat að borða nesti þegar það kom kona og talaði við fóstr­una og okk­ur var sagt að fara inn í bíl. Við þekkt­um þessa konu ekki og ég man að ég spurði hvort ég mætti klára að borða, hef alltaf verið mat­argat. Þenn­an dag fór­um við í fóst­ur á Blönduós og fór­um ekki aft­ur heim til for­eldra okk­ar.“ Hún er fædd á Ak­ur­eyri en þegar hún var fjög­urra ára var hún send í fóst­ur seg­ir Hilma Dögg í hlaðvarp­inu Sterk sam­an í umsjón Tinnu Guðrúnar Barkardóttur.

Hilma segist hafa verið hepp­in með fóst­ur­for­eldra sem enduðu á því að ætt­leiða hana. Hilma hefur átt í tölu­verðum erfiðleik­um með vímu­efni í gegnum tíðina, en hef­ur verið í bata frá óreglu í tólf ár. „Í dag er son­ur minn að verða 18 ára og á sjálf­ur í erfiðum vímu­efna­vanda, sá vandi byrjaði þegar hann var 12 ára gam­all.“ 

Síðasta ár er búið að vera erfitt

Hilma er ný­lega skil­in við föður yngsta son­ar síns. „Þetta síðasta ár er búið að vera erfitt, ég viður­kenni það, lífið ger­ist þó maður sé edrú,“ seg­ir hún og bæt­ir við:

„Ég á tvo fyr­ir­bura, dótt­ir mín kom níu vik­um fyr­ir tím­ann og svo kom yngsti fjór­tán vik­um fyr­ir og er með CP, svo það eru ýmis verk­efn­in. Þó svo ég eigi fatlað barn þýðir samt ekki að vanda­mál annarra sé eitt­hvað minna skil­urðu.“

Aðspurð hvernig hún hafi náð utan um allt þetta, segir hún: „Ég var kom­in með pill­uglas heim og far­in að horfa ofan í það. Ég var að skilja, ein með krakk­ana, í námi, áhyggj­ur af elsta strákn­um mín­um al­veg að fara með mig, hann hvarf reglu­lega en ég mátti ekki láta neinn sjá að það væri eitt­hvað að.“ 

Reyndi að flýja sársaukann með drykkju

Hilma segist hafa verið erfiður krakki og oft mjög reið. Þegar hún var 16 ára byrjaði hún að drekka áfengi, sem hafi fljótlega undið upp á sig. Þegar hún er um 17 ára var hún beitt kyn­ferðis­legu of­beldi og áfengisneyslan jókst til muna. Hún segist hafi reynt að flýja sársaukann með drykkju.

- Auglýsing -

Í dag er Hilma 41 árs þriggja barna móðir og seg­ir að líf án vímuefna hafi verið upp og niður. Hún hefur klárað einkaþjálf­ara­námið og finnur að lífið sé að verða betra.

Kynntist barnsföðurinum í meðferð

„Ég fór ung í meðferð, þar kynnt­ist ég nýju fólki, ég sá að ég ætti fullt eft­ir. Ég fór í marg­ar meðferðir og í einni þeirra kynnt­ist ég fyrsta barns­föður mín­um. Það er ekki mælt með því en á þeim tíma var það gott fyr­ir mig, það leið ekki á löngu þar til ég varð ólétt.“ 

Hilma náði að vera edrú um tíma, en féll inn á milli, þegar son­ur henn­ar var ung­ur. Hún hélt á þeim tíma að það væri nóg að hætta neyslu en að hún þyrfti ekki að vinna í líðan sinni á sama tíma.

- Auglýsing -

Sonur minn er í neyslu

„Í dag er son­ur minn að verða 18 ára og á sjálf­ur í erfiðum vímu­efna­vanda, sá vandi byrjaði þegar hann var 12 ára gam­all,“ seg­ir hún. 

Aðspurð seg­ir Hilma mun erfiðara að vera aðstand­andi og vita af barn­inu sínu úti í neyslu. 

„Ég fæ aðstoð frá kerf­inu núna en bara þar til hann verður 18 ára. Ég er samt hepp­in með hann, hann skil­ur mörk­in sem ég set og verð að setja því ég er með tvö önn­ur börn á heim­il­inu og því er ekki í boði að hafa ein­stak­ling í virkri neyslu þar.“

Fær símtal sem ekkert foreldri vill fá

Hilmu var farið að líða mjög illa þegar hún leitaði til í vinkonu sinnar eftir hjálp. Vinkonu hennar var brugðið þegar hún heyrði í henni og fór með hana beint á bráðamóttökuna. 

„Ég var búin að gráta stans­laust og gat ekki hætt. Mér fannst samt erfitt að fara á geðdeild því ég var ekki fall­in en samþykkti á end­an­um að leggj­ast inn, sem bet­ur fer.“ Hilma var inn á geðdeild í tvær vik­ur og var búin að ná upp styrk. Hún ákveður að fara norður til fjölskyldu sinnar rétt fyrir páska, þegar hún fær símtal sem ekkert foreldri vill fá.

„Ég var kom­in norður þegar ég fæ sím­tal frá gjör­gæsl­unni að son­ur minn sé þar og ekk­ert sé vitað hvernig það fari. Ég sest aft­ur upp í bíl og keyri í bæ­inn, sit við hliðina á hon­um í viku og klára verk­efn­in í skól­an­um og læri fyr­ir próf.“  

 

HÉR er hægt að hlusta einlægt og fallegt viðtal við Hilmu í heild sinni.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -