Föstudagur 26. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Íslendingar með æði fyrir ofskynjunardópi: „Hljóta allir að sjá hvað þetta er galin pæling“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur og deildarforseti íþróttafræðideildar HR, segir að svo virðist sem nýjasta æði Íslendinga sé ofskynjunarlyf. Það sé sambærilegt og fyrri æði fyrir fótanuddtækjum, Ketó og Air fryer. Ekki bætir úr skák að helstu æðismenn séu á Alþingi. Hér fyrir neðan má lesa langloku hennar, að eigin sögn, um hugvíkkandi efni sem hún birtir á Facebook.

Rant fyrsta ársfjórðungs – Langloka um hugvíkkandi efni.

Íslendingar virðast taka allt með miklu trompi, fótanuddtæki, ketó, air fryer og nú hugvíkkandi efni.

Umræðan um hugvíkkandi efni er alveg ótrúlega undarleg. Af umræðu í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum að dæma mætti halda að hér væri búið að finna lausn á geðröskunum og hér sé bara lykilinn af hamingju heimsbyggðarinnar. Ég einhvernvegin leyfi mér að efast stórlega um að svo sé, því miður.

Nú eru fjölmörg lyfjafyrirtæki komin eitthvað áleiðis í rannsóknum sínum á hugvíkkandi efnum en eins og staðan er núna, svo ég vitni í Kára Stefánsson “er ekki enn búið að sýna fram á að þetta hafi nein meiriháttar áhrif, til bata, á geðsjúkdómum”.  Það er vissulega möguleiki að 3ja fasa rannsóknir (sem nú eru í gangi) leiði í ljós að þessi efni hafi áhrif til bata, umfram lyfleysu, á ákveðnar geðraskanir.  Ég held að það sé ólíklegt að þessi efni muni hafa verulega góð áhrif á allar geðraskanir.  Ef í ljós kemur að þessi efni hafi áhrif á bata á ákveðnum geðröskunum er þó fullnaðarsigur ekki í höfn því þá þarf að skoða hvort áhrifin séu meiri en með þeim aðferðum sem eru, samkvæmt rannsóknum, áhrifaríkastar núna. Þá vísa ég sérstaklega til SSRI lyfja og vel strúktúrerðra hugrænar atferlismeðferðar. Svo eru allskonar aðrir þættir sem þyrfti að skoða betur.

Semsagt, það eru vísbendingar um að þessi efni geti mögulega hjálpað, það þarf frekari rannsóknir til þess að geta fullyrt um gagnsemi (og öryggi) efnanna. Þetta þarf bara að hafa sinn gang, það er tímafrekt en algjörlega nauðsynlegt að gera rannsóknir á nýjum lyfjum. Svo við skulum ekki prjóna yfir okkur, bíðum bara hæfilega vongóð eftir niðurstöðum rannsókna. Þetta er í mínum huga bara alveg basic,  þessvegna kemur svo á óvart hversu hástemd umræðan er. Þetta er líka alveg basic í huga bandaríska geðlæknafélagsins en þeir segja: “There is currently inadequate scientific evidence for endorsing the use of psychedelics to treat any psychiatric disorder” og “Clinical treatments should be determined by scientific evidence in accordance with applicable regulatory standards and not by ballot initiatives or popular opinion”

- Auglýsing -

Svo eru allskonar skrítnir vinklar á þessu. Maður sér sama fólk dásma þessi efni og tala fjálglega um gagnsemi þeirra og taldi gjörsamlega galið að láta bólusetja sig því það var ekki búið að rannsaka Covid bóluefnin nægilega mikið.  Þess ber að geta að bóluefnin fóru í gegnum alla þrjá fasa lyfjarannsókna en ekki er búið að klára þriðja fasa rannsókna hvað hugvíkkandi efnin varðar. Mótsögnin er því algjör.

Svo er það þingsályktunartillagan sem er eitthvað það skrítnasta sem hefur komið frá alþingi bara frá upphafi held ég. Það er eins og það ágæta fólk sem kemur að þessari þingsályktunartillögu hafi bara alveg gleymt að hugsa. Þessi þingsályktunartillaga ber því miður keim af populisma og vanþekkingu á hvernig vísindi og rannsóknir virka.  Ég þekki suma af þeim sem eru skráðir fyrir þessari tillögu og ég veit að þar fer klárt og gott fólk. Það hefur bara ruglast aðeins þegar það setti nafn sitt á þessa tillögu. En allavegana þá gengur þessi tillaga m.a. út á . “að undirbúa og leggja til nauðsynlegar breytingar, hvort sem er á lögum, reglugerðum eða með öðrum hætti, sem heimila rannsóknir og tilraunir með hugvíkkandi efnið sílósíbín í geðlækningaskyni”  og  „að Ísland verði leiðandi í rannsóknum á gagnsemi hugvíkkandi efna í geðlækningaskyni“  Byrjum á þessu með lög og reglugerðir sem heimila tilraunir og rannsóknir með hugvíkkandi efni. Lagaramminn hérlendis er þannig að það eru engar sérstakar hindranir í að rannsaka hugvíkkandi efni og bara nákvæmlega engin þörf á að breyta neinum lögum né reglugerðum. Þetta eru held ég allir sem þekkja til sammála um. Svo er það þetta um að Ísland eigi að vera leiðandi í rannsóknum á gagnsemi hugvíkkandi efna í geðlækningaskyni.

Ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja.  Í fyrsta lagi er það ekki hlutverk alþingis og alþingismanna að hafa bein áhrif á hvaða rannsóknir vísindamenn hérlendis gera. Það er einhver stæk forræðishyggja í því og það mætti draga hugtök eins og akademískt frelsi inn í þessa umræðu. Alþingi á að passa upp á að umhverfi til rannsókna sé almennt til sóma hérlendis en ekki koma með tillögu að tiltekið fólk á Landspítalnum eða við háskólanna fari að stunda rannsóknir á einhverju tilteknu efni alveg óháð áhuga þeirra eða getu til að gera þessar rannsóknir. Það fólk sem getur gert þessar rannsóknir hérlendis var ekki einu sinni spurt, eftir því sem ég best veit, hvort það hefði áhuga, tíma og resourca. Það hljóta allir að sjá hvað þetta er galin pæling. Þessi tillaga lýsir líka einhverju fullkomnu þekkingaleysi á innviðum rannsókna hérlendis.  Þeir eru stórlega ofmetnir í þingsályktunartillögunni svo ekki sé meira sagt. Fyrir mér er þetta þetta álíka kjánalegt og að segja að Ísland eigi að vera leiðandi á heimsvísu í keppnishjólreiðum á næsta ári.  Ekkert tillit tekið til aðstæðna hér á landi, fámennis eða skorti á fjármagni. Fyrir þá sem hafa áhuga á þessari tillögu þá getið þið lesið umsagnir sem hafa borist um hana, það er áhugaverð lesning.

- Auglýsing -

Ég gæti haldið lengi áfram en eflaust er ég búin að drepa alla úr leiðindum nú þegar. Þetta þarf bara að hafa sinn gang, simple as that. Alþingi þarf svo pínu að hysja upp um sig. Þetta er vandræðaleg tillaga. Ég vil taka fram að ég mun vera himinlifandi, eins og held ég allir sem starfað hafa innan geðheilbrigðiskerfisins ef í ljós kemur að hugvíkkandi efni reynist, samkvæmt rannsóknum, verulega árangursrík meðferð. Ég held að það sé ágætt að vitna í orð séra Friðriks að lokum, látum ekki kappið bera fegurðina ofurliði

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -