Laugardagur 20. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Já er svarið fyrir Sýn: „Við viljum byggja ofan á þá styrkleika sem Já er þekkt fyrir“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sýn hf. hefur gert kaupsamning á öllu hlutafé Eignarhaldsfélags Njálu ehf., sem er móðurfélag ja.is. Svo segir í yfirlýsingu sem Viðskiptaþróun Sýnar sendi frá sér rétt í þessu:

„Samkvæmt kaupsamningi mun Já jafnframt selja rekstur Gallup á Íslandi til þriðja aðila fyrir afhendingu hins selda. Viðskiptin eru jafnframt gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

„Með kaupum okkar á Já hefst vegferð þar sem við viljum byggja ofan á þá styrkleika sem Já er þekkt fyrir,“ segir Yngvi Halldórsson, forstjóri Sýnar. „Já er rótgróið vörumerki og ja.is er einn af tíu mest heimsóttu vefjum Íslands. Þangað leita einstaklingar til að finna upplýsingar um fólk, fyrirtæki og vörur. Miklir möguleikar eru í auknu þjónustuframboði byggt á öflugum kerfum félagsins og sterkum mannauð sem við erum mjög spennt að fá til liðs við okkur.“

Þá segir Vilborg Helga Harðardóttir, forstjóri Já:
„Við erum spennt fyrir því að ganga til liðs við Sýn og sjáum þar mikil tækifæri fyrir Já, sem
part af þeirri flóru sem þar er fyrir. Á sama tíma fylgir því tregi að segja skilið við góða
félaga hjá Gallup og óskum við þeim alls hins besta á sinni vegferð.“

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -