Fimmtudagur 2. maí, 2024
6.8 C
Reykjavik

Jón Gunnars kveður ráðuneytið: „Erfiður tími fyrir þá sem eru ekki fylgjandi Sjálfstæðisflokknum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Jón Gunnarsson kveður dómsmálaráðuneytið í færslu á Facebook síðu sinni í gær þar sem hann þakkar lesendum fyrir traustið, stuðninginn og aðhaldið undanfarin misseri en leggur áherslu á þakkir sínar til starfsfólks ráðuneytisins. Að lokum óskar hann eftirmönnum sínum farsæls starfs.

,,Við höfum orðið varir við að þetta hefur verið erfiður tími fyrir þá sem eru ekki fylgjandi Sjálfstæðisflokknum í skoðunum.“

Hann segir að það hafi ekki farið framhjá neinum að ýmislegt hafi gengið á í ráðuneytinu undanfarið þar sem margir málaflokkar, sérstaklega útlendingamál og löggæsla, hafi staðið þar á tímamótum auk þess að ýmsum framfaramálum hafi ýmist verið lokið eða ýtt úr vör og lýkur þeim orðum sínum orðrétt á því að „við höfum orðið varir við að þetta hefur verið erfiður tími fyrir þá sem eru ekki fylgjandi Sjálfstæðisflokknum í skoðunum.“

Að lokum segir hann að hann hefði kosið að geta fylgt eftir mikilvægum málum en það kallast á við það sem hann sagði þegar hann var gestur Reynis Traustasonar í þættinum Mannlífið í apríl síðastliðnum. Þar sem hann sagðist viðurkenna að þau í ráðuneytinu þyrftu meiri tíma en fram á vorið til að ljúka stórum málum.

Í sama viðtali var hann spurður hvort hann teldi að hann yrði áfram dómsmálaráðherra þar sem hann svaraði því þannig að frá honum séð ríkti um það fullkomin óvissa og varðandi framhald sitt í stjórnmálum orðaði hann það þannig að á meðan maður hefur gaman af hlutunum þá er gaman að halda áfram.

Færsla Jóns á Facebook í heild sinni:

„TAKK FYRIR OKKUR!
Við þökkum ykkur fyrir traustið, stuðninginn og aðhaldið sl. misseri.
Sérstakar þakkir fær starfsfólkið í dómsmálaráðuneytinu—hreint út sagt frábært samstarf.
Það hefur ekki farið framhjá neinum að ýmislegt hefur gengið á hjá okkur í dómsmálaráðuneytinu. Margir málaflokkar ráðuneytisins hafa staðið á tímamótum, þá sérstaklega útlendingamál og löggæsla, og hefur ýmsum framfaramálum verið ýmist lokið eða ýtt úr vör. Við höfum orðið varir við að þetta hefur verið erfiður tími fyrir þá sem eru ekki fylgjandi Sjálfstæðisflokknum í skoðunum.
Auðvitað hefðum við kosið að geta fylgt eftir mikilvægum málum sem lagður hefur verið góður grunnur að, en svona er pólitíkin.
Eftirmönnum okkar í ráðuneytinu færum við bestu óskir um farsælt starf.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -