Kennsla 8. bekkjar Hagaskóla mun fara fram á Hótel Sögu en eftir að mygla fannst í álmu bekkjarins í húsnæði skólans var ákveðið að færa kennsluna tímabundið.
Kemur fram í tilkynningu frá skólastjóra að mygla hafi nú einnig fundist hjá 9. bekk og því fellur niður kennsla hjá árgangnum í dag. Þá kemur fram að rakaskemmdir hafi fundist í álmu 10. bekkjar og sé verkfræðistofan Efla að vinna að greiningu á niðurstöðum. Verkfræðistofan muni þá gefa út endanlega ástandsskýrslu eftir að niðurstöður hafa fengist.
Foreldrar og nemar við Hagaskóla megi búast við nánari upplýsingum um framhaldið síðdegis í dag. Ekki sé ljóst hvar kennsla 9. bekkjar fari fram en verða næstu dagar notaðir í að finna húsnæði.
Fjallaði Vísir fyrst um málið.