Miðvikudagur 1. maí, 2024
7.1 C
Reykjavik

Nafn mannsins sem lést á Heiðmerkurvegi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hrafn Breiðfjörð Ellertsson er nafn unga mannsins sem lést í bifhjólaslysi á Heiðmerkurvegi í síðustu viku. Hrafn var fæddur árið 2004 og var búsettur á Álftanesi.

Samkvæmt frétt mbl.is fer útför hans fram í Víðistaðakirkju mánudaginn 18. mars klukkan 15:00.

Í kjölfar slyssins gaf lögreglan út tilkynningu þar sem kom fram að Hrafn hafi ekið bifhjóli vestur Heiðmerkurveg en virðist hafa misst stjórn á því og hafnað utan vegar.

Klukkan 18:19 fimmtudaginn 7. mars barst tilkynning um slysið og var hann fluttur á Landspítalann. Þar var hann úrskurðaður látinn skömmu síðar.

Mannlíf vottar vinum og ættingjum samúð sína.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -