Föstudagur 19. apríl, 2024
-0.9 C
Reykjavik

Nýjar reglur – Þau sem hafa fengið örvunarskammt eru undanþegin hefðbundinni sóttkví

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þau sem hafa fengið örvunarskammt bóluefnis gegn Covid-19 eru undanþegnir hefðbundinni sóttkví. Reglugerðarbreytingin tók gildi í gær og getur haft áhrif á lengd sóttkvíar hjá einstaklingum sem voru skipaðir í hana fyrir gildistöku.

Í staðinn gilda sérreglur í fimm daga um viðkomandi einstaklinga sem gerir þeim kleift að stunda vinnu og mæta í skóla. Allir sem fara í sóttkví geta stytt hana með neikvæðri niðurstöðu PCR prófi á fimmta degi.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra undirritaði reglugerðina en hún byggir á tilmælum frá sóttvarnalækni.

Breyttar reglur fela í sér að hlutaðeigandi er:

  • heimilt að sækja vinnu eða skóla og sækja sér nauðsynlega þjónustu, s.s. heilbrigðisþjónustu, fara í matvöruverslanir og lyfjabúðir og nota almenningssamgöngur,
  • óheimilt að fara á mannamót eða staði þar sem fleiri en 20 koma saman, nema í því samhengi sem nefnt er hér að ofan,
  • skylt að nota grímu í umgengni við alla nema þá sem teljast í nánum tengslum og gildir grímuskyldan einnig þótt hægt sé að halda tveggja metra fjarlægð,
  • óheimilt að heimsækja heilbrigðisstofnanir, þar með talin hjúkrunarheimili, nema með sérstöku leyfi viðkomandi stofnunar,
  • skylt að forðast umgengni við einstaklinga sem eru í aukinni hættu á alvarlegum veikindum ef þeir smitast af Covid-19.

Reglurnar gilda um:

  • einstaklinga sem eru þríbólusettir og fengu síðustu sprautuna meira en 14 dögum áður en viðkomandi er útsettur fyrir smiti
  • einstaklinga sem hafa jafnað sig af staðfestu Covid-smiti og eru jafnframt tvíbólusettir, að því gefnu að þeir hafi fengið síðari sprautuna meira en 14 dögum áður en þeir voru útsettir.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir í pistli sem hann birti í dag að tillagan sem heilbrigðisráðherra samþykkti sé byggð á nýlegri rannsókn í New England Journal of Medicine sem sýni að tvíbólusettir séu bæði ólíklegri til að taka smit og smita aðra.

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -